Stjörnurnar í fremstu röð
Hollywood stjörnur sækja í tískuvikur í miklum mæli, sérstaklega í New York, tískuborg Bandaríkjanna. Hvort sem þær eru á höttunum eftir hugmyndum að klæðnaði á rauða dregilinn, eða hvort þær eru að nýta sér tækifærið að sitja í fremstu röð og bera augun á nýjustu tískuna, þá klæða þær sig allavega í flottasta tískudressið til að fara á sýningar helstu hönnuðanna.
Nýafstaðin tískuvika í New York innihélt ýmsar stjörnur, bæði í fremstu röð, sem og baksviðs og í eftirpartýum. Oft er áhugavert er að sjá hverjir sitja hliðina á hverjum á tískuvikunum en t.d. sást írska söngkonan Roisin Murphy spjalla við rapparann Common á Diesel sýningunni og Kanye West á sýningu Preen. Murphy klæddist svörtum kjól með einum hlýra hjá Preen en sá kjóll hefur verið mjög vinsæll meðal stjarnanna.
Hjá Calvin Klein mættu leikkonurnar Eva Mendes og Kate Beckinsale svartklæddar, en Kate var klædd í forláta leðurkjól. Hjá Anna Sui sátu meðal annarra tvær Gossip Girl stjörnur, þær Taylor Momsen og Jessica Szohr. Taylor var í voða fínum kjól en klæddist svo mótorhjólaleðurjakka og háhæla ökklaskóm við til að herða lúkkið aðeins upp. Becki Newton úr Ugly Betty var einnig í mótorhjólaleðurjakka á sýningu 3.1 Phillip Lim, en var þó í gráum glamúr pallíettukjól innan undir sem kom óvenju vel út.
Stöllurnar Mary-Kate Olsen og Nicole Richie tóku sig vel út á sýningu Proenza Schouler en Mary-Kate mætti í Proenza Shouler kjól með tösku einnig frá Proenza, og svo var hún í jakka og skóm úr sínu eigin merki, Elizabeth & James, en skólína er væntanleg frá merkinu fyrir sumarið. Nicole var klassísk, í svörtu frá toppi til táar og rauðri kápu yfir. Nicole var einnig sætt klædd á sýningu Zac Posen. Þar var hún í svörtum sokkabuxum og skóm eins og hjá Proenza en kjóllinn var kremaður og alskreyttur rufflum.
Mischa Barton var töffaralega á sýningu gallabuxnamerkisins G-Star, en hún var í leðurbuxum, blazer jakka og með hatt. Mischa Barton lét sig svo ekki vanta á sýningu breska hönnuðarins Matthew Williamson þar sem hún hitti stöllu sína Lindsay Lohan, en þær voru báðar klæddar í kjóla úr sumarlínu Williamson. Talandi um Matthew Williamson þá klæddist Heidi Klum skærbleikri dragt úr sumarlínu hans þegar hún kynnti tískusýningu Project Runway á tískuvikunni, og hefur sá klæðnaður fengið mikla athygli.
Á sýningu Max Azria sátu leikkonurnar Joy Bryant og Rachel Bilson saman, en Bilson mætti á þónokkrar sýningar. Hjá Max Azria var hún í einnar axla kjól en hjá Zac Posen klæddist hún svartri dragt; buxum í ökklasídd og mjaðmasíðum jakka. Molly Sims var, eins og Bilson, í einnar axlar kjól á sýningu Donna Karan en þó mjög ólíkum. Sims mætti líka á sýningu Michael Kors og var þar í mjög kvenlegum kjól. Hún hugaði vel að aukahlutum eins og hálsmeni, belti og veski á sýningunum og því urðu kjólarnir glæsilegri fyrir vikið.
Það er klárt mál að hinar ótrúlegustu stjörnur birtast á tískuvikunni, það eru ekki eingöngu stjörnur úr unglingaþáttum, kvikmyndastjörnur og annars konar leikarar því þar má einnig sjá tónlistarfólk – söngkonur og rappara. DJ pían Leigh Leizark dúkkaði t.d. upp á ýmsum sýningum. Svo eru auðvitað ýmsir frægir innan tískuheimsins sem myndu ekki missa af tískuvikunni fyrir sitt litla líf og má þar helst nefna stjörnustílistann Rachel Zoe og ritstjóra Vogue, Anna Wintour, ásamt dóttur hennar Bee Shaffer. Eitt er víst að stjörnurnar skinu svo sannarlega skært á tískuvikunni!
