Stjörnurnar með stóra eyrnalokka

83601240074927stilleyrnalokkar.PNG
Rihanna; Kate Beckinsale; Jessica Simpson; Ginnifer Goodwin.

Stórir eyrnalokkar eru mjög vinsælir um þessar mundir. Stórir hringir hafa svolítið misst marks en þeir sem eru hvað heitastir nú og hafa sést á Hollywood stjörnum eru skreyttir glitrandi steinum. Eyrnalokkarnir eru mismunandi en eiga það sameiginlegt að vera frekar síðir. Það er í raun ekki hægt að lýsa þeim á einn hátt nema að þeir verða að vera afgerandi og áberandi. Stjörnurnar vita svo sannarlega að stórir eyrnalokkar geta gert heilmikið til að hressa upp á stílinn og komplementa fatnaðinn.

Rihanna ber eflaust djarfasta eyrnalokkaparið af myndunum að ofan en fyrir þá sem vilja minni glamúr og meiri metalfíling eru hennar lokkar góð fyrirmynd. Kate Beckinsale valdi vínrauða eyrnalokka með blómi og hangandi steinum. Jessica Simpson og Ginnifer Goodwin ákváðu hins vegar að veðja á lóðrétt eyrnalokkapar sem lengir örlítið andlitið. Það sem þarf að muna með stóra eyrnalokka er að hafa hárið uppi svo að lokkarnir njóti sín sem best, eitthvað sem stjörnurnar að ofan hafa greinilega tileinkað sér.