Sumarlegur götustíll
Sumarið er svo sannarlega komið þegar smart tískudömur eru farnar að sjást í ekta sumarmúnderingum á bloggsíðum götustílsljósmyndara. Eftir dimman vetur sem einkennst hefur af dökkum litum, leðri, loðfeldum, þykkum flíkum og lagskiptingu þá sjást loks myndir af sumarklæddum píum. Háu hælarnir fá að víkja, sólgleraugun eru tekin fram og góða skapið er ekki langt undan. Þetta eru forsendur sumarstílsins.
Það sem er svo þægilegt við sumarfatnað er að hann krefst oft ekki of mikillar fyrirhafnar. Hægt er að taka mið af myndunum að ofan þegar pælt er í sumarstílnum en þar má sjá nokkrar af möst flíkum sumarsins. Opnir sandalar, munstraðir sumarkjólar, sjóararendur og víðar buxur er bara nokkuð af því sem verður vinsælt í sumar. Sólgleraugun sem eru allra vinsælust í dag eru annars vegar þau kringlóttu en gleraugu í Wayfarer stíl Ray Ban eru þó enn góð og gild.
Áberandi er hversu buxnasamfestingar eru vinsælir í götustílnum. Eitt er það þegar trend birtist á sýningarpöllum, en annað þegar það yfirfærist til ‘venjulega fólksins‘. Samfestingarnir eru bæði munstraðir og einlitir, úr teygjuefnum og stífari – úrvalið er allavega mikið. Gallastuttbuxur eru einnig skotheldar í sumar og stuttir jakkar eru þægileg yfirhöfn yfir sumartíðina, ýmist yfir kjóla, boli eða samfestinga. Stúderið myndirnar og fáið innblástur fyrir komandi sumar.
Myndir: Craig Arend, Phil Oh, Hanneli Mustaparta, Anne Ziegler.
