Sumarlegur stíll á Coachella

75811240408504stillcoachella.PNG
Efri röð: Agyness Deyn, Cat Deeley, Chloe Sevigny, Daisy Lowe. Neðri röð: Dita von Teese, Kate Bosworth, Kimberly Stewart, Kirsten Dunst.

Um helgina átti sér stað Coachella tónlistarhátíðin í Kaliforníu og þar voru mættar ýmsar stjörnur til að hlusta á góða tóna. Nokkuð var um breskar stjörnur eins og ofurfyrirsætuna Agyness Deyn, Peaches Geldof, Daisy Lowe og sjónvarpskynnirinn Cat Deeley. Á Coachella sáust líka leikkonurnur Chloe Sevigny, Kate Bosworth, Reese Witherspoon og Kirsten Dunst. Með svo margar flott klæddar stjörnur samankomnar voru auðvitað ljósmyndarar á staðnum til að mynda fatasamsetningarnar.

Coachella er fyrsta tónlistarhátíðin í röðinni þetta sumarið og þar sem Kalifornía er þekkt fyrir árslangt góðviðri voru stjörnurnar léttklæddar í kjólum, pilsum og stuttbuxnasamfestingum, oftast við sandala. Að degi til var fatnaðurinn allavega á fyrrnefnda leið en þegar kvölda tók fóru margir að eins og Agyness Deyn, sem skellti leðurjakka yfir síðan gráan kjól og gráa Converse strigaskó sem búið var að skreyta með pýramídagöddum.

Aðrir völdu að sýna mikla húð en þeirra á meðal var fyrirsætan Daisy Lowe. Hún var í Diesel mínígallastuttbuxum við gegnsæjan magatopp. Margir hönnuður sýndu stutta toppa í sumarlínum sínum þar sem maginn var ber, en sitt sýnist hverjum um þessa samsetningu Lowe. Víst er að léttir sandalar hefðu eflaust hentað betur í hitanum en leðurstígvélin. Lowe má þó eiga það að hún bar mjög flott hringlótt sólgleraugu en þau verða heitasta sólgleraugnatrendið í sumar.

Chloe Sevigny var einnig með hringlótt sólgleraugu, bara minni og hringlóttari útgáfu. Chloe, sem er þekkt fyrir 90's stíl var í hlýrakjól með smáu blómamunstri og setti það ekki fyrir sig að klæðast stuttermabol undir kjólinn. Sniðugt er að klæðast stuttermabol undir hlýrakjóla á vorin hér á landi þegar það er ekki orðið nógu heitt úti. Hún paraði svo sokka við sandalana, en annað hvort hefur hún verið að reyna að setja tískuyfirlýsingu eða henni hefur einfaldlega verið kalt á tánum.

Sólgleraugu virtust vera ómissandi aukahlutur á Coachella, bæði sem tákn fyrir töffleika en einnig til að skýla augun frá sterkri Kaliforníusólinni. Cat Deeley og Kirsten Dunst voru báðar með svört sólgleraugu við hvítan fatnað og tanlitaðar töskur. Kirsten klæddist hvítum kjól en Cat stuttbuxnasamfesting með tribal munstri. Cat var í skylmingaþrælasöndulum sem voru mjög vinsælir síðasta sumar en við samfestinginn bar hún kögurtösku.

Kate Bosworth hefur einnig stokkið á kögurtöskutrendið, en hennar taska var einnig fölbrún en með tveimur kögurdúskum. Hún var í rauðu pilsi við hlýrabol og ljósan gallajakka sem hún fór í um kvöldið. Hún hefur ekki gleymt að lakka á sér neglurnar í skærum lit við sumarsandalana en Kimberly Stewart hafði einnig farið í lökkun fyrir hátíðina. Kimberly var í einföldum svörtum kjól sem hún kryddaði með belti. Stráhatturinn er alltaf klassískur en Reese Witherspoon sást einnig með stráhatt við safaríinnblásinn stuttbuxnasamfesting.

Dita von Teese var ekki mjög kærileysislega klædd eins og flestir á tónlistarhátíðum eru. Hún var mynduð í tveimur dressum á hátíðinni, fyrri daginn sást hún í stutterma skyrtukjól með sjóaramunstri við strigaskó. Seinni daginn var hún mætt í dömulegum rauðum og hvítum kjól frá Moschino Cheap and Chic með pífum að neðan. Sólgleraugun sem hún bar kallast Ginger og koma frá Badgley Mischka. Dita er ávallt dömuleg og lætur ekki tónlistarhátíð trufla fágaðan stílinn.