Tískureisa Kanye West & Amber Rose

33191239032368stillkanyeamber.PNG

Rapparinn Kanye West, sem lýsti því yfir fyrir nokkru að hann ætli sér frama í tískuheiminum, mætti vel á tískusýningarnar á tískuvikunum í lok febrúar fram í mars. Það nægði honum greinilega ekki að sýna sig í tískuborg Bandaríkjanna líkt og flestar amerísku stjörnur, heldur tók hann tískuvikurnar með trompi og fór á þrjár, en tískureisan hefur tekið allt í allt mánuð.

Kanye sást á mörgum sýningum í New York, þaðan lá leiðin til London þar sem hann sat í fremstu röð hjá þónokkrum hönnuðum og lokaáfangastaður var svo tískuborgin París. Hann var þó ekki maður einsamall því fyrirsætan Amber Rose var honum innan handar. Amber er mikil týpa og er alls ekki hrædd við að klæðast þröngum og stuttum fötum í æpandi litum. Hún er af svipuðu kúlkaliberi og Kanye en þau sportuðu iðulega ómótstæðilega töff sólgleraugum sem gáfu þeim heilmikla athygli fyrir svalt yfirbragð.

Fyrsta tískuvikudaginn í New York um miðjan febrúar sást Kanye á nokkrum sýningum, hjá Y-3, karlmannslínu Calvin Klein, Preen og Band of Outsiders. Á öllu sýningunum klæddist hann snjáðum gallajakka, sem átti eftir að verða algeng sjón á hinum tískuvikunum, við mosagrænar khakibuxur. Hann gleymdi ekki að hugsa um aukahlutina sem samanstóðu af tösku með hermannamunstri, brúnum leðurhönskum og gullúri.

Tveim dögum seinna var það hönnuðurinn Narciso Rodriguez sem átti allan hug Kanye. Þar mætti hann bæði á sýninguna sem og í eftirpartýið, með kærustuna, Amber Rose, upp á arminn. Kanye var aðeins fínna klæddur þennan daginn, í hvítri skyrtu og skærblárri peysu með herramannslega slaufu, og auðvitað í gallajakkanum. Amber var í hárauðum spandex leggings og svörtum leðurjakka með rauðan varalit í stil við leggingsarnar.

Næsta stopp í New York var Alexandra Herchovitch, 3.1 Phillip Lim og Tory Burch. Þar klæddist Kanye jakka í lúðrahljómsveitastíl með gylltum kraga og rauðum framermum. Amber var í leðurkjól við Balenciaga hæla en athygli vöktu tvílita leðurhanskar sem hún var í, helmingurinn svartur og hinn hvítur. Þau voru þó ekki eins prúðbúin þegar komið var til London á sýningu Vivienne Westwood Red Label þar sem þau klæddust gallajökkum og strigaskóm.

Restina af London sýningunum, sem innihéldu hönnuði eins og Richard Nicoll, Luella og House of Holland, þá sást Kanye meðal annars í fjólublárri gollu við svartan klæðnaði, í jakkafötum með rauða slaufu og leðurjakka við hettupeysu. Amber lét lítið fyrir sér fara en í París var hún þó aftur komin á ról. Þar sást hún í eiturgrænum leðurjakka á sýningu Jeremy Scott og í opnunarpartý verslunar Roberto Cavalli.

Amber klæddist svo einum flottasta kjól sumarsins, sem kemur frá Alexander Wang, á sýningum Hussein Chalayan, Givenchy og Sonia Rykiel. Kjóllinn er stuttur og þröngur úr svörtu gegnsæju efni en við hann var hún í Spicy skóm frá Louis Vuitton og með gyllta tösku einnig frá Vuitton. Á sýningu Stellu McCartney deginum á eftir var hún með svipað framandi aukahluti. Þá var bæði taskan og skórnir í zebramunstri, sem hún klæddist við þröngar neonbleikar leggings.

Síðasta sýningin í París var Yves Saint Laurent, þar sem Kanye og Amber mættu fáguð í svörtu. Kanye var í jakkafötum með satínkraga við svarta skyrtu, svarta slaufu og svarta strigaskó. Amber var í níðþröngum samfesting með beru baki en þar sást hún nánast í fyrsta skipti á öllum tískusýningunum án sólgleraugna með svarta og seiðandi augnförðun. Kvöldið virtist vera góður endir á skrautlegri tískureisu þeirra milli alheimsborga þar sem þau sátu í fremstu röð og spjölluðu við stórstjörnur, ásamt því að sjá heitustu tískuna.