Útihátíðarstíllinn
Í tilefni þess að Hróaskelduhátíðin er eftir rétt rúma viku og að verslunarmannahelgin nálgast óðfluga er ekki úr vegi að skoða útihátíðarstíl ársins. Nú þegar eru nokkrar tónlistarhátíðir erlendis búnar að eiga sér stað - Coachella í Kaliforníu í apríl og Isle of Wight hátíðin var haldin nú um miðjan júní í Bretlandi. Á miðvikudaginn hófst svo Glastonbury í Bretlandi og má búast við að sjá stíliserað fólk þar eins og fyrri ár. Fyrir þá Íslendinga sem eru hins vegar að fara á Hróaskeldu eða ætla að ferðast um landið um verslunarmannahelgina eru hér góðar hugmyndir að töff útihátíðarstíl.
Kate Moss er dugleg að mæta á Glastonbury hátíðina og hefur hún verið fastagestur síðustu ár, ásamt Alexu Chung og Pixie Geldof. Þær setja það ekki fyrir sig að klæðast gúmmístígvélum til að vaða drulluna en restin af lúkkinu er þó alltaf útpæld á þægilegan máta. Skótauið er því undantekningalaust flatbotna en gerðin fer eftir aðstæðum. Gúmmístígvélin eru eflaust best í drullu og bleytu en ef þurrt og heitt er í veðri þá er fullkomið að klæðast sætum sumarsöndulum eða Converse strigaskóm. Eins og sést hér að ofan er flott að vera í hnéháum sokkum við gúmmístígvélin.
Á útihátíðum snýst allt um tónlistina og að skemmta sér og því nenna fæstir að pæla of mikið í fötunum þó að það sé náttúrulega alltaf gaman að vera smart í tauinu. Stíllinn fer algjörlega eftir veðrinu. Ef það er hlýtt eru gallastuttbuxur, stuttir blómamynstraðir sumarkjólar og stuttbuxnasamfestingar málið. Ef kaldara er í veðri koma yfirhafnir á borð við leður- og gallajakka að góðum notum, ásamt hermannajökkum eins og Alexa Chung sýnir að ofan. Annað sem lífgar upp á stílinn eru sjóararendur, vintage hljómsveitarbolir auk glamúrs með pallíettum.
Svo er það punkturinn yfir i-ið, aukahlutirnir, þar sem þeir geta oft breytt einföldustu flíkum. Munstraðir klútar, stráhattar, áberandi hálsmen, armbönd og hárbönd eru tilvalin til að skreyta sig með. Kögurtöskur eru svo flottar til að geyma alla lausamuni. Að lokum má ekki gleyma sólgleraugunum ef sólin ákveður að láta sjá sig. Gott er að hafa á bakvið eyrun að ef ekki er hægt að klæða sig svolítið skrautlega á útihátið, hvenær þá? Því er um að gera að útihátíðarstíllinn sé töff og afslappaður í senn. Þannig er best að njóta lífsins.
