Veisluhöld Topshop

43211238694397topshopparty.PNG
Taylor Momsen; Zoe Kravitz; Julia Restoin-Roitfeld; Michelle Monaghan; Kate Moss.

Í tilefni opnunar Topshop vestanhafs hefur Sir Philip Green, eigandi Arcadia Group, móðurfélags Topshop keðjunnar, blásið til heljarinnar veislu. Veisluhöldin standa í þrjá daga og hófust á sérstökum kvöldverði á veitingastaðnum Balthazar í New York í fyrradag og fengu aðeins útvaldir boðskort. Opnun verslunarinnar sjálfrar átti sér svo stað fyrr í dag og verður því hið raunverulega opnunarpartý í kvöld.

Ástæða þess að partýhöldunum var skipt upp í þrjú teiti, var að Green segist ekki vilja 1000 manna veislur því hann nái aldrei að tala við fólk. Plássleysi var ekki vandamál þar sem nýja verslunin er rúmir 3700 fermetrar á fjórum hæðum. Þótt það hefði hentað efnahagsstöðunni í dag að hafa einungis eina veislu þá virtist Green vera nokkuð sama um það og ákvað að halda rækilega upp á þennan merkilega viðburð.

Bæði kvöldverðinn í fyrradag og veislu í versluninni í gærkvöldi prýddu margar stjórstjörnur. Þær kepptust um að hylla Topshop en þar má til dæmis nefna ungstirnið Emma Roberts, sem bjó í London í þrjá mánuði vegna kvikmyndar, en hún sagðist hafa verslað í Topshop einu sinni í viku. Roberts mætti settleg í partýið klædd kremuðum jakka og skóm við svartar buxur og bol.

Gossip Girl leikkonan Taylor Momsen var aðeins djarfari en Roberts. Hún mætti töffaraleg líkt og vanalega í mótorhjólaleðurjakka en hélt lúkkinu stelpulegu með bleiku pilsi og bleikum varalit í stíl. Hún var ekki sú eina sem var rokkuð því Julia Restoin-Roitfeld, dóttir Carine Roitfeld, var einnig í mótorhjólaleðurjakka en við hann var hún í flapper innblásnum kjól úr Kate Moss fyrir Topshop línunni.

Leikkonan Michelle Monaghan hafði greinilega farið í smá verslunarferð í búðinni fyrir partýið því hún var bæði í háum hælum og gráum rúskinnsjakka með ýktum öxlum úr Topshop. Hún sagði að hver einasta ferð til London snérist um Topshop. En nú þarf hún ekki lengur að ferðast út fyrir landsteinana til að fara í verslunina.

Sir Philip Green var myndaður í partýinu með konu sinni og dóttur, en dóttirin Chloe var smart klædd í pastelappelsínugulan kjól og munstraðan jakka við leðurleggings. Að lokum má svo ekki gleyma Kate Moss sem er eins konar heiðursgestur opnunarinnar. Þar sem hún er nú hönnuður fyrir Topshop með sína eigin línu, kom það ekki á óvart að kjóllinn sem hún klæddist, fölbleikur og mintugrænn með zebramunstri, væri úr hennar næstu vorlínu.