Vogue Paris teymið

91171243966645stillvogueparis.PNG

Vogue Paris er svalt tískutímarit og er meistaralega ritstýrt af hinni 54 ára gömlu Carine Roitfeld sem má án efa kalla staðalmynd franskra kvenna. Carine er með einstakt tískuvit en hún hefur verið við stjórn tímaritsins í ein átta ár. Hún stendur þó ekki að því ein sín liðs en ritstjórn Vogue Paris er líklega sú smartasta í tímaritasögunni. Eins og Carine segir sjálf þá eru stelpurnar hennar allar fallegar og þær kunna svo sannarlega að klæða sig í réttu flíkurnar – og réttu merkin. Tískudrósir hreinlega bíða eftir að myndir birtist af Vogue Paris teyminu á götum Parísar á bloggum götustílsljósmyndara. Þær eru vel til hafðar án þess að reyna of mikið, sem virðist svo eftirsóknarvert útlit. Tískuheimur.is mun hér greina frá smartleika þessarra kvenna og hvað þarf til að líta út eins og þær.

Carine Roitfeld, ritstjóri
Á toppi krúnunnar situr ritstjórinn Carine Roitfeld, komin á eldri árin en lítur ekkert verr út en starfsmenn hennar á þrítugsaldrinum. Carine ber yfir sér svolitla dulúð, er alltaf með kastaníubrúnt hárið aðeins fyrir andlitinu og með dökka augnmálningu. Hún er samt mjög hógvær miðað við þau völd sem hún hefur í tískuheiminum. Hún gengur mikið í franskri hönnun eins og Givenchy og brautriðjandi hönnuðurinn Maison Martin Margiela er í sérstöku uppáhaldi. Carine sést sjaldan í buxum en þess í stað eru kjólar og há mittispils aðalmálið í hennar stíl. Það er svolítið merkilegt hve oft hún klæðist kápum og hvað þær eru flottar. Þær eru með ýmsum skemmtilegum smáatriðum og stundum er eins og hún noti kápuna sem aðalatriðið eins og um kjól væri að ræða. Carine trúir á það ráð að eyða peningunum í fallega skó en kaupa frekar klassísk föt.

Emmanuelle Alt, tískustjóri
Emmanuelle Alt hefur starfað lengi hjá Vogue Paris, og átti hún mikinn þátt í breytingunum sem urðu á tímaritinu þegar Carine Roitfeld tók við því. Klassískur Emmanuelle klæðnaður eru Topshop gallabuxur við víðan stuttermabol og háa hæla. Það hljómar ekkert sérstakt en þessi samsetning á henni er frábær blanda. „Gleymdu nýtísku hönnunarmerkjum. Gallabuxur, peysa eða stuttermabolur undir jakka sem þér finnst pottþéttur. Þegar það er akkúrat rétt, þegar þú sérð ekki fyrirhöfnina, það er ómótstæðilegt." Þetta eru hennar eigin orð, en þótt hún klæðist hönnunarmerkjum er mikið til í þessu – stundum getur einfaldleikinn verið bestur. Kjólar eiga ekki upp á pallborðið hjá henni dagsdaglega en ef hún klæðist kjólum eru þeir frekar rokkaðir og aldrei kvenlegir. Hún er mikill aðdáandi Balmain og byrjaði að sjást í merkinu löngu áður en það komst svo rækilega inn á tískuradarinn og allar stjörnurnar fóru að klæðast því. Isabel Marant er annað merki sem Emmanuelle sést oft í enda stíliseraði hún síðustu sýningu hönnuðarins. Það sem er merkilegast við Emmanuelle er að hún hefur haft nokkuð svipaðan stíl í mörg ár. Hún vinnur trend hverrar árstíðar inn í fataskápinn sinn án þess að tapa sínum persónulega stíl.

Geraldine Saglio, aðstoðarstílisti
Geraldine Saglio hefur verið aðstoðarmaður Emmanuelle Alt sem gerir hana að aðstoðarstílista þar sem hún fær að stílisera tískusíðurnar ásamt Emmanuelle. Geraldine gengur mikið í svörtum sokkabuxum við mínípils en gengur einnig nokkuð mikið í gallabuxum. Hún velur bláar gallabuxur bæði þröngar niður sem og útvíðar í seventís stíl. Þannig snið geta lengt á manni leggina, sem Geraldine þarf þó ekki á að halda, því ef maður er í háum hælum undir og lætur buxurnar ná yfir hælana virkar maður miklu hærri. Hvort sem hún er í gallabuxum eða sokkabuxum og pilsi þá eru kasmírpeysur og blazer jakkar hennar aðalflíkur að ofan. Röndótt, hlébarða- og hermannamunstur notar hún svo endrum og sinnum til að gefa smá líf í svarta litinn sem einkennir franskan stíl hennar.

Melanie Huynh, aðstoðarritstjóri
Melanie Huynh er hálf frönsk og hálf víetnömsk. Hún byrjaði sem aðstoðarstílisti en er nú aðstoðarritstjóri. Stíll hennar einkennist af svörtu en grár er líka óvenju áberandi á jökkum og kjólum. Melanie sést oft í háum hælum með oddjmórri tá sem var búið að vera úti í nokkurn tíma en komst aftur í tísku þegar þeir birtust í haustlínu Balenciaga. Þar sem Melanie var ólétt síðustu mánuði litaðist stíll hennar svolítið af því en það áhugaverðasta var þó að hún breytti stíl sínum ekki óhemju mikið. Hún virtist reyndar ekki bæta á sig mikilli þyngd fyrir utan magann og því gat hún leyft sér að vera berleggja við stutta kjóla úr teygjuefnum og áhugaverða jakka. Áður en hún varð ólétt gekk hún mikið í pilsum ásamt kjólum en pilsin fengu að víkja eftir því sem maginn stækkaði. Margir höfðu orð á því að vart væri hægt að finna eins smart óletta konu og eflaust er margt til í því.

Eftir að líta á myndir af Vogue Paris dömunum má greinilega sjá að það þarf ekki svo mikið til að líta út eins og þær. Það er reyndar svo að allar eru þær með líkama eins og fyrirsætur, langa leggi og þær undirstrika leggina óspart. Það þarf samt ekki sand af seðlum til að ná kjarna stíls þeirra sem liggur mikið í grunnflíkum með skemmtilegum tvist. Þær eru vissulega ekki litaglaðar en hver er það svo sem á Íslandi yfir vetrartímann. Myndirnar að ofan sýna mest megnis vetrarstíl frönsku damanna en það er vel hægt að nýta sér ýmsar hugmyndir fyrir kalda íslenska sumardaga. Það vekur þó sérstaka athygli að þær bera sjaldnast handtösku. Ef þær þurfa að bera tösku eru þær litlar og penar clutch töskur. Þeir sem vilja fylgjast með stíl þeirra ættu að skoða götustílsbloggsíður á borð við Garance Doré og The Sartorialist þegar tískuvikur standa yfir (næsta er í september) þar sem þær eru tíðir gestir.