Tíska
Innsýn í haustlínu Warehouse
Fyrir tveimur vikum leit Tískuheimur á haustlínu Oasis, en nú er komið að annarri breskri verslanakeðju, Warehouse. Hér fyrir ofan má líta á auglýsingamyndir vetrarins þar sem helstu trendum verslanakeðjunnar eru gerð skil. Nokkuð er um grunge og rokk áhrif en einnig sést skírskotun til níunda áratugarins með púffuðum öxlum. Haustlína Warehouse inniheldur mikið af svörtu og gráu en skosk tartan munstur og önnur köflótt efni fá einnig að njóta sín. Auk þess má sjá listræn abstrakt og grafísk munstur á pilsum og kjólum, en þess konar munstur sáust á sýningarpöllum ýmissa tískuhúsa fyrir vetrarlínur þeirra. Eins og áður býður Warehouse upp á úrval flottra kjóla, bæði hversdagslega sem og fínni. Einnig verður að finna mikið af kápum, jökkum ásamt aukahlutum fyrir veturinn. Það ætti enginn að verða svikinn í Warehouse á komandi mánuðum!
Tískuvikan í Köben: Stine Goya
Yfir þrjátíu hönnuðir sýndu á nýafstaðinni Kaupmannahafnartískuviku. Þar var hægt að líta á sumarlínur danskra hönnuða á borð við Malene Birger, Henrik Vibskov og Charlotte Eskildsen. Tískuheimur hefur augun á ungum hönnuði á uppleið, Stine Goya. Goya útskrifaðist sem fatahönnuður úr Central Saint Martins árið 2005 með sérstöðu í munstrum. Fyrstu línuna sína kallaði hún Confetti og sýndi hana á tískuvikunni í Kaupmannahöfn tveimur árum eftir útskrift, í febrúar árið 2007. Goya fékk mikla athygli í heimalandinu og hefur síðan þá ekki brugðist því að heilla aðdáendur sína með ungri og flottri hönnun.
Fyrir næsta sumar sýndi Stine Goya ekta sumarfatnað í ferskum pastel litum. Ljósappelsínugulur, fölbleikur og lime grænn komu þar mest við sögu en svartur frá toppi til táar sást inn á milli. Goya ákvað að hunsa hinn venjulega sýningarpall og kaus þess í stað að sýna línuna við sundlaugarbakka. Það var þó algjörlega við hæfi þar sem í sumarlínunni var að finna flott sundföt og fatnað sem myndi henta einstaklega vel á ströndinni og í sumarfríinu. Þægindin voru höfð í fyrirrúmi með buxnasamfestingum, harem buxum og víðum bolum en settlegri flíkur á borð við aðsniðna jakka og dömulega kjóla komu þar á móti.
Punkturinn yfir i-ið voru svo litríkar glimmervarir og perluskreyttir hanskar sem fyrirsætur báru á annarri hendinni – óður til poppkóngsins kannski?
Skoðaðu fleiri hönnuði á www.copenhagenfashionweek.com.
Spennandi vetur framundan hjá Oasis
Í þessum töluðu orðum eru haustvörur tískukeðjanna farnar að streyma í hús. Flestir eru eflaust orðnir spenntir að versla nýju haustvörurnar, en ein verslun sem ætti klárlega að vera á listanum er Oasis. Breska tískukeðjan hefur fengið flott andlitslyftingu fyrir komandi haust og vetur og inniheldur línan öll helstu trendin sem verða ríkjandi í vetur. Dökkir litir eru áberandi, með einstaka munstri inn á milli, en í stað þess að leggja áherslu á mikið af skærum litum þá skipar áferð stærri sess. Pallíettur, glanssteinar, metalhnappar, blúndur, fjaðrir, leðurlíki og loðfeldir til að nefna eitthvað. Níunda áratugs einkenni eru einnig sjáanleg með skörpum öxlum. Haustlína Oasis er væn blanda af 80‘s, rokki og glamúr – hausttískan í hnotskurn.
Ekki missa af umfjöllunum Tískuheims um haustlínur fleirri tískukeðja á næstu vikum!
Auglýsingaherferðir haustsins
Nú þegar sumarið er opinberlega sigið á seinni hlutann og haustið nálgast óðfluga með kaldara veðri og haustvörum í tískubúðirnar þá er ekki úr vegi að líta yfir auglýsingaherferðir tískuhúsanna fyrir komandi haust og vetur. Síðustu tvo mánuði hafa myndir úr herferðunum streymt á tískubloggsíður og -fréttasíður en flestar auglýsinganna birtast ekki í tímaritum fyrr en í september tölublöðunum, þó að sumar sé nú þegar hægt að finna í ágúst blöðunum. En hér að ofan gefur að líta á helstu herferðirnar sem allir eru að tala um.
Chloé Kasia Struss, Sigrid Agren og Karlie Kloss (fyrirsætur), Marie Amelie Sauve (stílisti), Mikael Jansson (ljósmyndari).
Stella McCartney Sigrid Agren (fyrirsæta), Jane How (stílisti), Ryan McGinley (ljósmyndari).
Gucci Natasha Poly (fyrirsætur), Emmanuelle Alt (stílisti), Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin (ljósmyndarar).
Yves Saint Laurent Christy Turlington (fyrirsæta), Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin (ljósmyndarar).
Miu Miu Hannah Holman (fyrirsæta), Mert Alas og Marcus Piggott (ljósmyndarar).
Lanvin Kristen McMenamy (fyrirsæta), Steven Miesel (ljósmyndari).
Jil Sander Natasha Poly (fyrirsæta), Olivier Rizzo (stílisti), Willy Vanderperre (ljósmyndari).
Fendi Jessica Stam (fyrirsæta), Karl Lagerfeld (ljósmyndari).
Fleiri haust herferðir sem Tískuheimur.is hefur áður fjallað um eru Adriana Lima fyrir Givenchy, Emma Watson fyrir Burberry, Madonna fyrir Louis Vuitton, Lily Allen fyrir Chanel.
