Allt um sumartískuna
Frá vinstri: Húðlitaður, pallíettur, ber magi, stórar axlir, einnar axla kjóll í gulli.
Það er alltaf gaman þegar ný árstíð er í þann veginn að bresta á. Ekki aðeins þýðir vorið að sumarið sé að koma heldur er hægt að byrja að klæðast léttum sumarfatnaði. Sumartískan í ár olli aldeilis ekki vonbrigðum þegar hún var sýnd síðasta haust en Tískuheimur.is mun birta umfjallanir um alla helstu tískustraumana á næstu mánuðum ásamt miklu magni af myndum til innblásturs. En núna er hins vegar ágætt að fara yfir helstu trendin fyrir komandi sumar og sjá hverju við má búast.
Fyrir það fyrsta eru ákveðnar stefnur í litum. Húðlitaður var mjög áberandi hjá hönnuðum og var hann oft notaður frá toppi til táar. Á móti þeim hlutlausa lit koma svo skærir litir – bláir, gulir, bleikir, appelsínugulir – allir ferskir og tærir. Fyrir þá sem vilja liti, en ekki of skæra bar svolítið á vatnslitum, sem búið var að dempa niður þannig þeir voru ljósir og fölir. Skjannahvítur var nokkuð vinsæll og var hann notaður í flíkur með flottum smáatriðum. Að lokum eru það svo málmlitir en af þeim var gullið langvinsælast og notað á mjög berskjaldaðan hátt.
Ýmsar áferðir og skreytingar voru á efnum fatnaðar en þar má helst nefna pallíettur sem verða öðruvísi og meira spennandi en áður hefur sést. Fjaðrir verða flottar og glamúrlegar bæði sem flíkur og skreytingar. Krumpuð efni eru svo andstæðan við pallíettur og fjaðrir, en sáust hjá ýmsum hönnuðum í látlausum jarðlitum. Kögur kom sterkt inn, annars vegar fínlegt sem prýddi fatnað og hins vegar rússkinskögur sem var í grófari stíl á skóm og töskum aðallega.
Skjólleysi húðarinnar var talsvert í sviðsljósinu með gegnsæjum efnum. Þau voru bæði á toppum en líka á buxum og pilsum, en trendið var gert á fágaðan hátt þar sem aðalmálið er að nota gegnsæ efni í bland við önnur efni. Einnig sáust svokallaðar gægjuflíkur og var búið að skera form úr efnum á öxlum, baki eða maga. Ber magi var langt frá því að vera sjaldséður á sýningarpöllunum. Í raun voru margir hönnuðir sem hönnuðu flíkur sem sýndu hluta af maganum, oftast efri hlutanum, í sýningum sínum.
Hvað áhrif varðar voru nokkur vinsælli en önnur. Mikið var um framandi áhrif frá margbrotinni menningu Afríku með æpandi munstrum, safaríflíkum og innblæstri frá Marokkó. Framtíðin var stór partur í sýningum nokkurra hönnuða en þar mátti líta á skörp snið, hátæknileg efni og kalda silfurliti. Íþróttaáhrif birtust einnig í sportlegum flíkum úr teygjuefnum sem báru yfir sér þægindi. Níundi áratugurinn birtist svo í formi stórra og ýktra axla. Að lokum eru það áhrif úr villta vestrinu með vott af kúreka- og indíánayfirbragði.
Þá eru það flíkurnar og sniðin sem verða vinsælust í sumar og allir verða að eignast. Klofsíðar harem buxur verða heitar þótt skiptar skoðanir séu um klæðileika þeirra. Einnar axla kjólar verða eitt flottasta kjólasniðið þar sem aðeins önnur öxlin er sýnd. Annað kjólatrend eru þröngir míníkjólar með borðum á þvers og kruss. Í gallabuxum er steinþvottur heitastur og ljóst gallefni yfirhöfuð en rifnar buxur koma líka strekar inn. Ökklabuxur sem voru mestmegnis sýndar í gráu verða flottar enda eru skórnir í sviðsljósinu. Svo eru það buxnasamfestingar sem hafa fengið mikla athygli en þeir eru svolítið víðir í sér í léttum og þægilegum efnum og því tilvalinn sumarklæðnaður.
Sumartískan er í heildina séð mjög spennandi og ýmislegt í gangi þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum. Hún er ljós og létt, og mun því birta mikið yfir fataskápunum í sumar þar sem vetrartískan hefur einkennst af dökkum flíkum og leðri, og gotneskum, grunge og pönk áhrifum. Það verður því bara gaman að taka á móti sumrinu vitandi af öllum þeim fersku tískustefnum sem verða við lýði.
