Auglýsingaherferðir haustsins

tiskaherferdir.PNG

Nú þegar sumarið er opinberlega sigið á seinni hlutann og haustið nálgast óðfluga með kaldara veðri og haustvörum í tískubúðirnar þá er ekki úr vegi að líta yfir auglýsingaherferðir tískuhúsanna fyrir komandi haust og vetur. Síðustu tvo mánuði hafa myndir úr herferðunum streymt á tískubloggsíður og -fréttasíður en flestar auglýsinganna birtast ekki í tímaritum fyrr en í september tölublöðunum, þó að sumar sé nú þegar hægt að finna í ágúst blöðunum. En hér að ofan gefur að líta á helstu herferðirnar sem allir eru að tala um.

Chloé   Kasia Struss, Sigrid Agren og Karlie Kloss (fyrirsætur), Marie Amelie Sauve (stílisti), Mikael Jansson (ljósmyndari).
Stella McCartney   Sigrid Agren (fyrirsæta), Jane How (stílisti), Ryan McGinley (ljósmyndari).
Gucci   Natasha Poly (fyrirsætur), Emmanuelle Alt (stílisti), Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin (ljósmyndarar).
Yves Saint Laurent   Christy Turlington (fyrirsæta), Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin (ljósmyndarar).
Miu Miu   Hannah Holman (fyrirsæta), Mert Alas og Marcus Piggott (ljósmyndarar).
Lanvin   Kristen McMenamy (fyrirsæta), Steven Miesel (ljósmyndari).
Jil Sander   Natasha Poly (fyrirsæta), Olivier Rizzo (stílisti), Willy Vanderperre (ljósmyndari).
Fendi   Jessica Stam (fyrirsæta), Karl Lagerfeld (ljósmyndari).

Fleiri haust herferðir sem Tískuheimur.is hefur áður fjallað um eru Adriana Lima fyrir Givenchy, Emma Watson fyrir Burberry, Madonna fyrir Louis Vuitton, Lily Allen fyrir Chanel.