Blazer jakkar

30671247249294tiskablazer.PNG
Efri röð: Stella McCartney, Rag & Bone, Alexander Wang. Neðri röð: Stella McCartney, Dries van Noten, DKNY, Sonia Rykiel. Jakkar til hægri: Topshop (efsti og neðsti), Zara (í miðið).

Blazer jakkar í yfirstærð, eða kærastajakkar eins og þeir eru stundum kallaðir, eru svalir yfir sumartímann en munu einnig ganga í vetur. Þeir sáust til dæmis í sýningu Stellu McCartney sem er þekkt fyrir afslappað yfirbragð. Jakkarnir passa við allt; stuttbuxur, buxur, pils, kjóla og jafnvel samfestinga. Nú dugar ekki aðsniðin og kvenlegur blazer jakki, heldur eru þessir víðir og svolítið síðir og meiri yfirhöfn. Það er algjört möst að bretta upp á ermarnar eða ýta þeim upp að olnbogum þannig að þær krumpist. Þetta er gert til að líta ekki út eins og karlmaður. Prófið jakkanna í öðrum litum en svörtum, t.d. hvítum, kremuðum, drapplituðum, bleikum eða gráum.

Scott Sternberg, hönnuður Boy by Band of Outsiders innihélt nokkra blazer jakka í línunni sinni fyrir sumarið. „Hönnuðir eru loksins að viðurkenna að karlmannsfatnaður fyrir konur er ekki bara tískusveifla heldur er þetta eitthvað sem konum langar stundum til að klæðast," segir Sternberg. „Kærastajakkinn er mjög lýðræðislegur; hann fer öllum vel." Blazer jakkar eru einfaldir og klæðilegir, en þær allra lágvöxnustu ættu þó að forðast of víða og síða jakka sem gera ekkert fyrir vöxtinn. Besta sniðið eru þeir sem ná rétt fyrir neðan rassinn eða um hann miðjann, og eru temmilega víðir. Mikið úrval hefur verið af jökkum sem þessum m.a. í Topshop og Zöru undanfarið og ætti að vera hægt að finna flotta jakka á útsölunum.