Feneyjaáhrif í sumarleyfislínu Chanel

18971242604738tiskachanel.PNG

Mál málanna í tískuheiminum þessa dagana er nýafstaðin cruise sýning Chanel. Mikið umstang skapaðist í kringum línuna sem var sýnd í Feneyjum á Ítalíu á fimmtudaginn síðasta. Cruise lína er ætluð ríkum sumarleyfisförum yfir vetrartímann en hún fer í sölu í nóvember næstkomandi og ætti því að koma að góðum notum fyrir þá sem ætla sér á snekkjuna eftir áramótin. Cruise línur hönnuða eru líka kallaðar resort línur sem vísar í lúxussumarleyfisstaði. Ýmislegt birtist á sýningarpallinum að þessu sinni og var gaman að sjá túlkun Karl Lagerfeld á sumarleyfisfatnaði næsta veturs.

Lagerfeld, höfuðpaur Chanel, var búinn að skapa eftirvæntingu fyrir sýninguna með fjórum stuttmyndum sem frumsýndar voru á heimasíðu Chanel. Í stuttmyndunum sáust myndbrot frá Feneyjum sem var áfangastaður sýningarinnar. Áður hefur Lagerfeld meðal annars sýnt cruise sýningar í Monte Carlo, Los Angeles og Miami. Hann er þekktur fyrir að sýna línurnar í borgum sem gefa góða mynd af anda línunnar. Í þetta skiptið var línan innblásin af fína fólki Feneyja á fjórða áratugnum og voru sannir Chanel aðdáendur mættir til að líta hana augum.

Sýningin tók sér stað á ströndinni og var sýningarpallurinn viðargöngustígur. Í byrjun stigu svartklæddar fyrirsætur fram í sundfötum, með skikkju og hatt og var innkoman þó nokkuð dramatísk. Það næsta sem kom á eftir var í sjóarastíl – hvítt og blátt, rendur og skírskotun í matrósaföt sáust greinilega. Ríkulegur rauður litur var gegnum gangandi í línunni og voru það jafnframt kjólar, jakkar og sokkabuxur sem báru litinn. Einnig sáust flíkur með munstrum úr Chanel slæðum en annars voru svartur og hvítur vinsælustu litirnir enda aðallitir Chanel.

Yfirbragð línunnar var eins og vera ber frá Chanel en Lagerfeld sagðist hafa viljað skapa dulúð með flíkunum. Mikið úrval var að fínum kjólum í línunni, síðkjólum og styttri kjólum í efnum eins og siffoni, blúndu og silki en jakkar og pils úr tweed sáust einnig. Kostur línunnar var fjölbreytileiki hennar sem sameinaðist í kvenleika, lúxus og fortíðaráhrifum. Meistari Karl Lagerfeld náði enn og aftur að heilla alla með sinni einstöku hönnun og hefði gert Coco Chanel stolta enda voru Feneyjar valdnar með tilliti til ást Coco á þessari fallegu og rómantísku borg.

Chanel ríður á vaðið með sýningu á cruise línu sinni en fleiri hönnuðir feta í fótspor franska tískuhússins nú í maí og fram í júní. Cruise línur hafa aukist meðal hönnuða á undanförnum árum og eru það alltaf fleiri og fleiri sem bætast í hópinn á ári hverju. Meira að segja ungir og upprennandi hönnuðir sjá tækifæri í aukinni sölu með því að koma með sumarleyfislínu á markað. Fæstir hönnuðir munu þó splæsa í tískusýningu fyrir línuna í efnahagi sem þessum og munu því halda lágstemmdari kynningu á cruise línum sínum.