Framandi ferð um Afríku
Afríka var stór áhrifavaldur í sumarlínunum og voru það meðal annars ankara og ikat munstur sjáanleg á sýningarpöllunum. Einnig voru ýmis dýramunstur áberandi, þá aðallega blettatígra og zebra en líka snáka. Aukahlutirnir voru einnig hannaðir með áhrifin í huga og perlur og leðurfléttur voru vinsælar skreytingar á aukahlutum og skarti. Lúkkið er framandi og ber yfir sér etnískt yfirbragð. Framandi flíkurnar voru þó allt annað en púkalegar og má þessari framandi ferð frekar lýsa sem lúxusreisu um heimkynni Afríku þar sem nútímalegt landnemaútlit kemur við sögu.
Mismunandi litum og munstrum er mikið blandað saman svo úr verður hrærigrautur af óvenjulegri samsetningu. Fyrir utan öll líflegu munstrin sást innblástur frá afríska landinu Marokkó með túrban, berbabuxum og hefðbundnum marokkóskum munstrum. Safaríáhrifin komu hins vegar í ljós í formi kakístuttbuxna, sem voru vinsæl flík, og jakka með beltum í mittinu. Hönnuðirnir sem fóru alla leið í framandi suðupotti voru þau Ralph Lauren, Veronica Etro og Marc Jacobs fyrir Louis Vuitton (munið eftir Spicy skónum) – og skipti þá engu hvort þau voru sýnd í formi munstra, sniða eða aukahluta.
