Framtíðaráhrif í sumartískunni
Efri röð: Gianfranco Ferré, Costume National, Alexander McQueen, Balenciaga. Neðri röð: Karl Lagerfeld, Calvin Klein, Balenciaga.
Það er alltaf gaman þegar hönnuðir hugsa til framtíðar og hanna áhættusamar línur. Vísindaleg nálgun á sumartískuna kom fram í skörpum sniðum, hátæknilegum efnum og köldum litum á borð við hvítan, gráan og silfur. Efnin voru til dæmis í plastlíki eða með metaláferð en oft voru þau stíf til að auðveldara væri að móta þau í rúmfræðileg form.
Tilraunastarfsemin kom skemmtilega út þar sem línur líkamans voru ýktar og hönnuðir leituðu á önnur og ný mið hvað snið varðar. Sumar samsetningar líkjast helst búningum úr geimkvikmynd og því ekki þær klæðilegustu. En þótt framtíðaráhrifin hafi verið yfirgnæfandi voru flíkurnar samt sem áður fallegar. Það er áhugavert að sjá hvernig hönnuðir túlka framtíðina, en yfir höfuð var útkoman fersk, ljós, nútímaleg og kvenleg í senn.
