Gamli góði stráhatturinn

82701245076311tiskastrahattar.PNG
Efri röð: Gucci, Sportmax, Y-3. Neðri röð: Emanuel Ungaro, Anna Sui, Marc Jacobs.

Stráhattar sáust sem höfuðprýði á mörgum fyrirsætum í sumarsýningum hönnuða. Stráhatturinn, sem hefur einnig verið kallaður Panama hattur, er ekkert nýtt af nálinni en hann rekur uppruna sinn allt til miðja tuttugustu öldina. Stráhatturinn hefur oft verið tengdur við sumarleyfi og sólrík svæði enda einn besti og einfaldasti aukahluturinn í sumarfríi hitabeltiseyja. Hann fer vel við safaríinnblásnar flíkur auk munstraðra kaftan kjóla.

Það sem er svo einstakt við stráhattinn er að hann hefur staðist tímans tönn og er því ekki tískubóla, auk þess sem hann klæðir bæði kynin jafn vel og því eitt af því fáa sem hægt er að samnýta með karlmönnunum. Hatturinn kemur í ýmsum útgáfum en á sumarsýningarpöllunum voru þeir bæði grófofnir sem og fínlegir og elegant, og fer það allt eftir því útliti sem leitast er eftir.

Stráhattar koma oft með borða um sig sem eru vanalega svartir. Hjá Gucci voru borðarnir hins vegar litríkir sem kom skemmtileg út, en einfalt er að skipta svörtum borða út fyrir bjartari lit sem passar við fatnaðinn. Ekkert eitt passar við stráhattinn þó að flíkur í safarístíl séu vanalegast tengdar við hann. Aðalmálið er að yfirbragðið sé svalt og yfirvegað, og koma buxur í víðari kantinum vel til greina við sumarlega sandala en suðrænn kjóll er ekkert síðri.

16051245077215tiskastrahattarstjornur.PNG
Cameron Diaz; Chloe Sevigny; Michelle Williams.