Glæsiklæðnaðir á hátískuviku

tiskacouture.PNG

 

Hátíska er svolítið misskilið orð hér á landi. Hátíska á ekki við um lúxus tískumerki á borð við Gucci, Dolce & Gabbana og Versace. Í Frakklandi, borg hátískunnar, kallast þessi gerð tísku haute couture. Það sem margir gera sér eflaust ekki grein fyrir er að hátíska er verndað heiti með lögum, en allir hátískuhönnuðir þurfa að tilheyra sérstöku ráðuneyti hátískuiðnaðarins sem staðsett er í París. Þeir þurfa í ofanálag að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta framleitt hátískulínur. Hátískuvikan fyrir komandi haust- og vetrartíð var haldin í tískuborginni fyrr í mánuðinum og hér verður farið yfir glæsilegustu klæðnaðina.

Christian Lacroix
Sýningin sem mest var beðið eftir, var sýning Christian Lacroix. Hann hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum nýlega, eiginlega á barmi gjaldþrots. Heimildir herma að fyrirsætur hafi nánast gengið sýningarpallinn frítt miðað við hve lág laun þær fengu. Lacroix, sem hefur verið að síðan 1987, olli ekki vonbrigðum og upphóf mikið lófaklapp áhorfenda undir lok sýningarinnar. Línan var aðgengileg og að stórum hluta í dökkum litum. Hún var ekki eins íburðarmikil og áður og hélt Lacroix sig frá of ríkulegum efnum og skreytingum, en passaði þó upp á að hver flík bæri flott smáatriði. Brátt kemur í ljós hvort þetta hafi verið hans síðasta sýning eða hvort hann fær hjálp frá fjárfestum.

Roberto Cavalli
Cavalli hefur hingað til ekki einbeitt sér að hátískuhönnun, en hann ákvað að koma á laggirnar nokkurs konar hátískuþjónustu fyrir ríkustu viðskiptavini sína í byrjun júlí. Nú spyrja eflaust margir, af hverju að ráðast í að stofna hátískulínu í kreppu? Ekki er vitað hvað kemur til en hann sýndi þessa línu á lágstemmdan hátt frammi fyrir tískublaðamönnum. Þar lagði hann þó sérstaka áherslu á að línan væri ekki byrjunin á hátískulínu, heldur væri hún frekar þjónusta þar sem viðskiptavinir geta fengið lúxus Cavalli flíkur saumað eftir máli. Línan kallast Roberto Cavalli Saint-Honore og inniheldur draumkennda kokteil- og galakjóla úr flæðandi siffon efnum. Aðeins verða gerðir 35 kjólar af þessu tagi á ári.

Armani Privé
Giorgio Armani hélt í stjörnuvaldið í pallíettuskreyttri glamúrlínu. Hönnuðurinn líkti glamúrnum ekki við glamúr dagsins í dag, heldur meira í anda fimmta áratugarins, svolítið film noir í Katherine Hepburn anda. Sýningin byrjaði á klæðskerasniðnum drögtum og við tóku slétt flauels jakkar, buxur og pils. Eini liturinn í línunni fyrir utan svartan og metalliti var rafmagnaður blár sem prýddi fína samkvæmiskjóla. Síðustu klæðnaðina sem Armani sendi út á sýningarpallinn voru þröngir samfestingar með glitrandi steinum, nokkuð ný taka á samfestingatrendið. 

Givenchy
Riccardo Tisci, listrænn stjórnandi Givenchy, er yngsti hátískuhönnuður í sögunni, 33 ára að aldri. Hann hefur einstaka sýn á tísku, en síðustu misserin hefur hann töfrað fram dularfullar gyðjulínur með nokkuð dökku yfirbragði. Í þetta skiptið var hann innblásin frá miðausturlöndunum og lituðu allar fyrirsæturnar hárið á sér svart fyrir sýninguna. Klæðnaðirnir skiptust í tvennt eftir litunum svörtum og hvítum. Sá svarta fylgdi mikið af gull fylgihlutum, en þeim hvíta fylgdu skærlitaðir skrautsteinar.

Chanel
Hátískusýning Chanel er alltaf einstök og er sýningin sjálf vanalega ekkert síðri en sjálfur fatnaðurinn. Karl Lagerfeld á það til að skreyta sýningarstaðinn með gríðarstórum leikmunum og í þetta skiptið urðu ilmvatnsglös Chanel No.5 fyrir valinu. Eftir alhvíta hátískusýningu í janúar fór Lagerfeld öðruvísi að í þetta skiptið. Hann sýndi pilsdragtir og kokteilkjóla við blúndusokkabuxur en þemað var næturklúbbastemning áttunda áratugarins. Það sem var einstakt við pilsin og kjólana var missídd þeirra, stutt að framan og sítt að aftan. Í lokaatriðinu opnaðist ein ilmvatnsflaskan og út komu Lara Stone og Baptiste Giabiconi sem brúðarpar. Chanel sýning var í alla staði frábær, bæði staðsetningin sem og hönnunin.

Aðrir hátískuhönnuðir sem sýndu línur sínar voru John Galliano fyrir Dior, Maria Grazia Chiuri og Pier Paolo Piccioli fyrir Valentino, Alexis Mabille, Elie Saab og Jean Paul Gaultier. Hönnun þeirra má skoða nánar á www.style.com undir Fall 2009 Couture.