Gullæði hönnuða

91101239739051gull.PNG
Vivienne Westwood gullkápa í miðið. Efri röð: Burberry Prorsum, Armand Basi, Prada. Neðri röð: Sophia Kokosalaki, Louis Vuitton taska, Thakoon skór.

Það var ekki mikið kreppuyfirbragð á gullflíkunum sem birtust á sýningarpöllum hönnuða fyrir sumarið. Margir hönnuðir kusu að skarta gullflíkum, sem og aukahlutum í gulli, í línum sínum. Líklegasta skýringin er að láta þær innihalda örlítinn lúxus og glamúr. Oftast var gullinu bætt inní á hógværan hátt, þar sem eitt eða tvö lúkk í línunni voru í gulli, en restin svo lágstemmdari. Hjá Prada voru til dæmis flestar flíkurnar úr krumpuðu bómullarefni í jarðlitum, en svo var glóandi gullflíkum bætt inní til að lífga aðeins uppá.

Efnin voru í ýmsum gulltónum, allt frá því að vera skínandi gyllt í það að vera í dempuðum gulllituðum en einnig sáust brons og kopar litir. Gullefnin gera flíkurnar sem þau prýða að hálfgerðum konungsflíkum – svo ríkuleg eru efnin. Það sem er áhugaverðast við gulltrendið er áferðin á efnunum, en oft voru þau munstruð eða búið að skreyta þau með glitrandi steinum til að gera flíkurnar enn glamúrlegri. Gylltir aukahlutir líkt og töskur og skór geta gert heilmikið upp á klæðnaðinn, og auðveldara er að bæta þeim í fataskápinn en flíkum í gulli.