Harem heitasta buxnasniðið

14561243262150tiskaharem.PNG
Til vinstri: Temperley. Efri röð: Etro, Dries van Noten, 3.1 Phillip Lim. Neðri röð: DKNY, Phi, Armand Basi. Til hægri: Doo.Ri.

Harem buxur, innblásnar frá níunda áratuginum verða heitar í sumar. Efnin sem buxurnar sáust oftast í voru silki og satín en einnig jersey. Efnin eiga það sameiginlegt að vera létt í sér og frekar þunn. Þó að hönnuðir hafi gert glamúrlegar útgáfur af harem buxunum eru þær samt sem áður þægilegar, en eins og hönnuðurinn Alice Temperley sem innihélt harem sniðið í sinni línu fyrir vor og sumar, vilja flestir víð og þægileg föt á sumrin og því finnast henni harem buxur afar hentugar.

Mörgum finnst harem þó erfiðar í sniði. Þær eru klofsíðar og geta vera óklæðilegar á lágvöxnum líkama, en þá er aðalmálið að vera í hælum við buxurnar. Það er líka um að gera að prófa sig áfram með harem sniðið því þær koma mismunandi klofsíðar og eru ekki allar eins víðar. Þær sem eru mjaðmabreiðar skulu ekki velja of ýkta útgáfu og halda sig við dekkri liti, en þær grennri geta prófað víðari snið. Að ofan er svo best að halda sig við aðsniðnar flíkur til að jafna allt saman út.