Húðlitað í sumar

14511237923400hudlitadtrend.PNG
Efst til vinstri: Christopher Kane, neðst til vinstri: Preen, í miðjunni: Rodarte, efst til hægri: Lanvin, neðst til hægri: skór frá Proenza Schouler á fótum Mary-Kate Olsen.

Húðlitaður var út um allt á sumarsýningarpöllunum. Liturinn er tilvalinn fyrir sumarið sökum ljóss yfirbragðs hans, og ef marka má hönnuði verður hann algjört möst fyrir sumarið. Hann kom með ýmsu ívafi og í öllum mögulegum litatónum – allt frá því að vera mjög fölur, nánast út í kremaðan, í að vera dekkri. Hann birtist einnig með vott af ferskju- og aprikósutónum sem gerði hann aðeins líflegri.

Þótt liturinn sé frekar hlutlaus, var hann vanalegast sýndur frá toppi til táar. Liturinn nýtur sín best þannig, þó að þær stjörnur sem nú þegar hafa tekið forskot á sæluna hafi oft blandað honum við svartan, enda enn vetrartíð og svartur því í fullu gildi. Fyrir þá sem leggja ekki í húðlitaðan fatnað ættu allavega að verða sér úti um húðlitaða hælaskó sem verða einnig vinsælir enda lengja þeir leggina.

Húðlitaðir og beislitaðir eru mjög mildir og má helst líkja við farða og meik þar sem fötin blandast við húðina svo úr verður eitt. Hönnuðir nýttu sér einfaldleika húðlitarins og unnu meira með efnið, eins og hjá Chloé og Christopher Kane. Liturinn var notaður á allskyns gerðir af flíkum og alla vegana efni, allt frá bómul til silki. Húðlitaður kemur best út þegar maður gerir eins og hönnuðirnir, notar hann frá toppi til táar. Þrátt fyrir að liturinn sé alls ekki áberandi litaval er hann fersk og góð nýjung fyrir sumarið.