Íþróttaflíkur fá nýjan tilgang
Alexander Wang; Celine (efri); VPL (neðri); BCBG Max Azria; Abaéte; Marc by Marc Jacobs.
Flíkur eins og hlaupabuxur, hettupeysur og sundbolasamfestingar prýddu marga sýningarpallana fyrir sumarið. Ekki er fatnaðurinn þó sérstaklega ætlaður til hreyfingar þar sem hann er eiginlega einum of töff til að svitna í. Þetta trend er lúxus útgáfa af sportý flíkum þar sem teygjuefni eru í fyrirrúmi. Fatnaðurinn er þægilegur og fyrirhafnalaus með mikið af bláum lit í bland við hvítt og svart. Til að nefna nokkra hönnuði þá voru Alexander Wang, Louise Goldin og Stella McCartney í miklum sportfíling fyrir sumarið en hér að ofan má sjá lúkkið hjá fleiri hönnuðum.
