Kögurtöskur
Kate Moss í New York 1.apríl; Kate í nóvember á síðasta ári; rúskinnstaska með gullhnöppum frá Topshop; leðurtaska með síðu kögri frá Topshop.
Kögur hefur tröllriðið öllu upp á síðkastið. Það hefur sést á jökkum, skóm, peysum, kjólum og svo má lengi telja. Kögurtöskur í leðri eða rúskinni eru fullkominn aukahlutur til að taka upp kögurtrendið. Töskur með kögri hafa sést á stjörnunum en hægt er að fá ýmsar útgáfur í verslunum hér á landi. Hvort sem þú vilt fá lítið eða mikið kögur, stóra eða litla tösku þá er til kögurtaska við allra hæfi.
Kate Moss hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sést með sína kögurtösku, hvort sem það er við gallabuxur og jakka í daglegum erindum eða við fína kjóla að kvöldi. Taskan, sem er hönnuð af Genevieve Jones, kallast ‘Kate‘ og er nefnd eftir fyrirsætunni sjálfri. Hún hefur sést á handleggjum fyrirsætunnar í allan vetur og hefur hún mikið notað hana í New York á undanförnum vikum vegna opnunar Topshop keðjunnar þar.
Líkt og taska Kate Moss eru kögurtöskur bæjarins flestar með með kögri meðfram endunum. Í Topshop, Kringlunni og Smáralind, fæst meðalstór kögurtaska úr rúskinni með gullhnöppum á 14.990 kr. Þar má einnig finna leðurtösku af minni gerðinni með síðu kögri, en sú taska er á 6.990 kr. Sítt kögur getur verið svolítið flott og dramatískt en þar sem taskan er frekar lítil hentar hún betur við fínni tilefni en stór taska.
Þeir sem eiga leið um Laugaveginn geta fundið flottar kögurtöskur þar. Í Aftur á Laugavegi 23 er gott úrval af rúmgóðum leðurtöskum með marglita kögri fyrir 47.000 kr. Nokkru lengra á Laugaveginum, eða númer 35, er svo að finna verslunina Einveru. Þar eru seldar smart kögurtöskur, bæði brúnar og svartar, en þær kosta 6.990 kr. Það er allavega víst að kögurtöskur verða töff í sumar og eflaust munum við sjá Kate Moss nota sína mikið yfir sólríku mánuðina.
