Kringlótt það heitasta í sólgleraugnatískunni

10951240839816hringlottsolgleraugu.PNG
Efri röð: Vera Wang, Carolina Herrera, Proenza Schouler, Chloe Sevigny. Neðri röð: Ralph Lauren, Dries van Noten, Mary-Kate Olsen, Nicole Richie.

Á sumrin spila sólgleraugu stórt hlutverk og alltaf verður eitthver ein gerð af sólgleraugum mest áberandi, hvort sem það ræðst af ákveðnu formi, lit, munstri eða öðru. Það sem er hvað ferskast núna í sólgleraugnatískunni er hringlaga form. Hönnuðir voru samróma um að þetta væri heitasta form sólgleraugna sumarsins en þau sáust meðal annars hjá Ralph Lauren, Vera Wang, Proenza Schouler og Dries van Noten. Sum voru með litaðri umgjörð en glerið var alltaf kolsvart.

Mary-Kate Olsen byrjaði að sjást með svört kringlótt sólgleraugu síðasta sumar og var nánast ekki með annað á nefinu. Hún hefur nú fært sig í meiri John Lennon stíl og sportar iðulega minni útgáfu með fínlegri metalumgjörð og bláum glerjum. Nicole Richie var sömuleiðis byrjuð á trendinu í fyrrasumar og var þá oft með Chanel gleraugu með frekar þykkri umgjörð. Fyrr í þessum mánuðinu sást hún svo með annað par af hringlaga sólgleraugum, en þau voru í stærra lagi enda Nicole þekkt fyrir að velja frekar stærri en minni sólgleraugu.

Fleiri stjörnur sem hafa borið kringlótt sólgleraugu upp á síðkastið eru leikkonan Chloe Sevigny og fyrirsætan Erin Wasson. Sú fyrrnefnda klæddist þeim á Coachella hátíðinni sem haldin var nýlega, en sú síðarnefnda bar sín á tískuvikunni í París. Stjörnurnar sem sést hafa með kringlótt sólgleraugu eru þær sem taka frekar áhættu í stíl sínum, en gleraugu sem þessi eru alls ekki smekkur allra auk þess sem þau henta ekki hvaða andlitslagi sem er. Það er þó um að gera að hafa opinn huga þegar kemur að tískunni og prófa þetta nýja og flotta sólgleraugnatrend og skipta þeim út fyrir gamla parið í sumar.