Krumpuð efni

71621241910816tiskakrumpad.PNG
Costume National, Bottega Veneta, Burberry Prorsum, Lanvin, Prada.

Krumpuðu efnin sem sáust hjá allnokkrum hönnuðum fyrir sumarið hafa strax verið tengd við kreppuna. Það er því líklegt að kreppa hafi verið ofarlega í huga Miuccia Prada þegar hún hannaði sumarlínuna sína sem samanstóð af krumpuðum efnum. Prada vildi fara aftur til frumþarfanna og rótanna og því gæti innblásturinn verið fyrrihluta tuttugustu aldarinnar þegar efnahagurinn var einnig í slæmu ástandi. Kosturinn við þessi efni er minni fyrirhöfn þar sem ekkert straujárn kemur við sögu.

Fleiri hönnuðir rötuðu í sömu spor og Prada en þótt yfirbragðið hafi verið frekar fátæklegt voru efnin ekki í þeim stíl þar sem bómull og silki voru algeng en efnin áttu það sameiginlegt að vera frekar stíf í sér til að krumpuðu áhrifin myndi sjást betur. Krumpuðu efnin voru oft látlaus í jarðlitum en þó voru litirnir í heitum tónum bæði hjá Lanvin og Bottega Veneta. Þó að strigapokafatnaður fátæklinga birtist eflaust einhverjum fyrir sjónir þegar krumpur eru annars vegar, þá er krumputrend sumarsins úr ríkulegum efnum, fallega látlausum litum og með svo lúmskum ásetningi að uppruni og innblástur þess gleymist í fegurð útkomunnar.