Kryddað frá Louis Vuitton

23171238672750lvmjspicy.PNG
Frá vinstri: Spicy skórnir frá Louis Vuitton á fótum kvenna á tískuvikunni í París, á sýningarpalli Louis Vuitton í september.

Vinsælustu skór sumarsins verða án efa 'Spicy' skórnir frá Louis Vuitton. Skórnir hafa nú þegar sést á fótum ótalmargra kvenna, bæði stórstjörnum sem og fólki innan tískubransans. Eigendurnir eiga það allir sameiginlegt að eiga talsvert af peningum þar sem parið er á um 270 þúsund íslenskar krónur. Skórnir koma úr sumarlínu Louis Vuitton og eru hannaðir af Marc Jacobs.

Þó að skórnir hafi verið sýndir á tískusýningu í París í september síðastliðnum, þá voru stjörnurnar ekki lengi að dúkka upp klæddar skónum. Þar má nefna Madonnu, sem er andlit auglýsingaherferðar sumarlínunnar, Victoriu Beckham, Chloé Sevigny og Heidi Klum. Listinn er langur enda ómótstæðilegir skór hér á ferð.

Skórnir eru mjög framandi í Afríkustíl með blöndu af ýmsum leðurtegundum og skreyttir meðal annars með viðarperlum, fjöðrum og fíngerðum köðlum. Katie Grand, ritstjóri Love tímaritsins og stílisti Vuitton, sagði um skóna, „þeir eru skemmtilegir og fjörlegir, eiginlega listaverk." Næstum hvert einasta par í sýningunni var einstakt, þannig að til eru margar mismunandi útgáfur af skónum.

Jacobs fékk hugmyndina að þeim klukkan þrjú um nótt og byrjaði að skera snákaleður, leður, hlébarðaefni og efnisborða í hluta á meðan hönnunarteymi hans bjó til grímur innblásnar af ættbálkum Afríku til að setja framan á skóna. Stílistar hafa útskýrt að hægt sé að endurskapa Spicy hælana fyrir lítinn pening með því að skreyta háhæla sandala úr leðri, rúskinni eða snákaleðri með fyrrnefndum skreytingum.