Litasprengja af skærum litum
Allaveganna skærir litir verða vinsælir í sumar. Appelsínugulur og skærbleikur voru á meðal þeirra vinsælustu lita sem sáust á sýningarpöllunum. Litir ýmissa ávaxta voru áberandi og má þar til dæmis nefna sítrónu, lime, appelsínu og vatnsmelónu. Skærir litir veita dagklæðnaði nýtt líf og ferskt yfirbragð. Eins dökk og vetrartískan hefur verið, er loksins hægt að klæðast sterkum og orkumiklum litum. Meira að segja Alexander Wang, sem er mikill aðdáandi svarta litarins innihélt liti í sinni línu. "Þið vilduð liti, þið fenguð liti!" sagði Wang fyrir sýninguna sína. Aðrir hönnuðir sem voru litaglaðir fyrir sumarið voru Jonathan Saunders, Christopher Kane, Richard Nicoll, Josh Goot og Sinha-Stanic til að nefna nokkra.
Oftast var tveimur eða fleiri litum blandað saman, annað hvort á mismunandi flíkum eða eina og sama flíkin var í nokkrum litum í formi litablokkar. Best er að para saman liti úr sömu litafjölskyldunni, eins og gulan við appelsínugulann, túrkis við kóngabláan og svo framvegis, en þannig fæst meiri harmonering í útkomuna. Þeir sem þora geta prófað saman ólíka sterka liti í einskonar litablokk. Þar fer sæblár vel við gult, hindberjableikur við eggaldinfjólubláan, eplagrænn við bleikt, og tyggjóbleikur við rautt. Svona má halda áfram en það sem skiptir mestu máli er að færa svolítinn lit í fataskápinn, það getur þess vegna verið í formi aukahluta. Þó að það sé ekki nema að klæðast einum sterkum lit við svart - þá er strax kominn smá líf í klæðnaðinn.
