Mark Fast er rísandi stjarna tískunnar

39371245698785tiskamarkfast.PNG

Hver er maðurinn
Mark Fast er eitt af þeim nýju nöfnum í tískuheiminum sem fylgst er grannt með þessa dagana. Fast útskrifaðist með mastersgráðu úr hinum margrómaða Central Saint Martins fyrir um einu og hálfu ári síðan, en þar einbeitti hann sér að flíkum úr fínlegu prjónaefni. Aðeins hálfu ári eftir útskrift, eða í september á síðasta ári, var honum boðið að taka þátt í tískuvikunni í London fyrir tilstuðlan New Gen styrk breska tískuráðsins og fékk hann styrkinn svo aftur fyrir næstu tískuviku. Hinn 28 ára Fast býr nú í London en ólst upp í Kanada. Hann segir rólega og einfalda lífsstílinn í Kanada hafa leitt hann að þeirri spurningu hvað væri að finna fyrir utan landsteinana. Það ferðalag endaði í London þar sem örlögin biðu hans.

Nýstárlegar prjónarflíkur
Fast vinnur prjónaefni á mjög spennandi og framúrstefnulegan hátt. Hann handgerir hverja einustu flík á gamla prjónavél sem hann fann í verslun með notaðar vörur og keypti hana án þess að kunna eitt handtak á vélina. Þessi vinnubrögð gera flíkurnar hans einstakari fyrir vikið. Náttúrufegurðin í Kanada er það sem veitir Fast almennt innblástur við hönnunina en það er þó nægur töffleiki frá London á móti til að skapa ómótstæðilega blöndu. Hann gerir aðallega kjóla og eru þeir þröngir og kynþokkafullir og laga sig að kvenlíkamanum. Þeir eru samansettir úr efnisþráðum og eru sumir skreyttir kögri en aðrir með útklippur sem sýna glimpsur af líkamanum. Fast er ekki hræddur við að leika sér með prjónaefni og fá út allt aðra útkomu en búist var við.

Haustlínan umrædda
„Það er kominn tími á uppreisn gegn örygginu. Það er spennandi að vera hönnuður í dag," sagði Fast á sýningu sinni í febrúar. Þar kynnti hann línu sína fyrir næsta haust og vetur sem má segja að hafi kveikt peruna hjá tískufólkinu sem sá eitthvað áhugavert við þennan unga hönnuð. Hugmyndin að baki línunnar er þrumuveður og allt sem því fylgir – augnablikið sem er fyllt hræðslu en einnig óútskýranlegri fegurð. Með línunni heldur Fast áfram að vinna með prjónaaðferðina á stuttum og þröngum partýkjólum en fór þó í eilítið fágaðri átt. Fast reynir að hanna fatnað sem er ólíkur því sem aðrir eru gera og fer því algjörlega eftir eigin innsæi. Hann segist einbeita sér að tímalausri klassík en með óvæntum smáatriðum.

Það sem framtíðin ber í skauti sér
Mark Fast er talinn feta í fótspor hönnuða á borð við Christopher Kane, Jonathan Saunders og Gareth Pugh sem eru allir Saint Martins skólagengnir og unnu sér inn vinsældir fyrir ómælda hæfileika og nýstárlega hönnun. Ekki er að búast við öðru en velgengni frá Mark Fast en þrátt fyrir að ferill hans sé rétt að byrja, býr hann yfir reynslu sem aðstoðarmaður hjá Lanvin tískuhúsinu auk þess að vinna þrjár línur með Bora Aksu. Mark Fast er loksins farinn að fá meiri athygli tískufjölmiðla, en fatnaður frá honum hefur nýlega birst í Vogue og i-D. Heimildarmaður segir ýmislegt í pípunum hjá þessum efnilega hönnuði og að jafnvel búast megi við ódýrari línu frá Mark fyrir þekkta tískukeðju.

Nánari upplýsingar og myndir er að finna á www.markfast.net