Munstursérfræðingurinn Mary Katrantzou

55681246621089tiskamary.PNG
Efst til vinstri: Hönnuðurinn, Mary Katrantzou. Efri röð: Sumarlína Mary Katrantzou 2009. Neðri röð: Haust- og vetrarlína Mary Katrantzou 2009-2010.

Mary Katrantzou er einn af þeim sautján hönnuðum sem fengu styrk á dögunum frá breska tískuráðinu fyrir komandi tískuviku, og mun sá styrkur koma að góðum notum við að kynna línur þeirra. Mary er upprunalega frá Grikklandi en settist að í Bandaríkjunum til að stunda nám við hönnunarskóla þar í landi. Fljótt ákvað hún þó að skipta yfir til London þar sem hún sótti Central Saint Martins og útskrifaðist hún bæði með bachelor og mastergráðu í fatahönnun úr þeim skóla. Mary hefur nokkra reynslu í farteskinu, hún vann fyrir landa sinn, Sophiu Kokosalaki, og fyrir tískuhúsið Bill Blass.

Það sem er svo sérstakt við hönnun Mary eru listræn munstur hennar á flíkunum. Fyrir haustlínu sína var hún innblásin af gömlum ilmvatnsflöskum sem sást greinilega í munstri flíkanna, án þess þó að vera túlkað of bókstaflega. Munstrin er aðallega að finna á kjólum sem eru úr eðalefnum á borð við silki og satín. Mary hannar þó ekki einungis dýrindis munstur heldur er hún einnig aukahlutahönnuður. Hún gerir mikið af hálsmenum sem eru svolítið gróf og notar hún óvænt efni í þau. Skartið er framleitt í heimalandinu Grikklandi af móður Mary sem á húsgagnaverksmiðju.

Mark Fast er annar hönnuður sem fékk sama styrk og Mary, og er þeim spáð álíka vinsældum í framtíðinni. Þau hanna þó undir mjög ólíkum formerkjum. Á meðan Mark heldur í kynþokkann og einbeitir sér að efnum, þá hugsar Mary frekar um munstrin, og að sýna kvenlíkamann á óáberandi hátt. Mary hefur mikla hæfileika, bæði í hönnun fatnaðar og aukahluta, og er útkoman bæði einstök og áhugaverð. Miðað við þá athygli sem hún hefur nú þegar fengið má búast við að hún muni verða stór stjarna í tískuheiminum von bráðar.