Nýtt frá Farmers Market

87601244897324tiskafarmersmarket.PNG
Heiði kjólarnir; Holt blússan; Holt og Heiði saman.

Flottar nýjungar komu frá íslenska hönnunarfyrirtækinu Farmers Market nú í júní. Kjóllinn Heiði sem Farmers Market kynnti fyrir nokkru er nú kominn í þremur nýjum litum. Heiði var áður til í hvítu, svörtu og gylltu og nutu þeir strax mikilla vinsælda. Nýju litirnir eru örlítið litaglaðari en þeir sem fyrir voru, en það eru plómulitaður og grænblár og sá þriðji er köflóttur. Heiði kjólarnir eru allir úr 100 prósent hrásilki nema sá köflótti sem er úr bómul. Kjólarnir koma í einni stærð með stillanlegum hlýrum og passa því flestum.

Önnur nýjung frá Farmers Market er flík sem kallast Holt. Blússan er stutterma og víð í sniði með lausri slaufu um hálsmálið. Holt er innblásinn af íslenskum peysufötum en ber þó yfir sér nútímabrag. Holt fæst í takmörkuðu upplagi og er aðeins seld í verslun Farmers Market að Eyjarslóð 9 og því ættu þeim sem langar í eintak að hafa hraðar hendur. Einstaklega flott er að klæðast Heiði kjólnum í svörtu yfir Holt blússuna eins og sést hér að ofan.

Farmers Market er spennandi hönnunarfyrirtæki sem var stofnað árið 2005 af þeim Bergþóru Guðnadóttur og Jóel Pálssyni. Hugmyndin var að hanna föt og fylgihluti þar sem áhersla væri lögð á náttúruleg hráefni með íslensku ullina í öndvegi. Úr smiðju Farmers Market hafa komið ullarpeysur af ýmsu tagi en þau hafa nú leitað á ný mið hvað efni varðar. Yfirbragð flíkanna ber alltaf yfir sér einhverskonar íslenskt yfirbragð þar sem innblástur fyrir hönnuninni er sóttur í rætur íslenskar menningar.