Skór: Leður & metal

73211239969945tiskaskor.PNG
Alexander Wang; Balmain; Rodarte.

Harða leðurlúkkið með göddum, leðurreimum, keðjum og öðru í dökkum stíl verður áfram vinsælt í sumar en ekki eins mikið í fatnaði því skórnir sáu mest megnis um að halda því á lofti. Þótt að Alexander Wang hafi birt þó nokkuð yfir sinni sumarlínu í kjölfar einstaklegra dökkrar vetrarsýningu, þá hélt hann í sitt einkenni – harða lúkkið – með því að sýna skóna í leðri með keðjum.

Hjá Balmain, heitasta merkinu í dag, var sambland af pýramída-, hringlagagöddum og kristallsperlum. Rodarte veðjaði hinsvegar á keðjur á sínum skóm. Til að hræða ekki fólk með oddhvössum göddum og metalkeðjum er ágætt að para skó sem þessa saman við eitthvað í viðkunnalegri stíl. Til dæmis væri hægt að klæðast stuttum kjól í einhverjum af sterkum litum sumarsins við gadda og keðjuskó til að mynda skemmtilegar andstæður.