Snákaskinn á skóm og töskum
Efri röð: Jil Sander, Lanvin, Prada, Bottega Veneta, Jil Sander. Neðri röð: Matthew Williamson x3, 3.1 Phillip Lim, Prada.
Skór og töskur í snáka- og öðrum skriðdýraleðrum sáust í sumarsýningum margra hönnuða. Skriðdýraleðrin komu í ýmsum útgáfum þar sem munstrið var mismunandi og litirnir af öllum gerðum. Grænn, bleikur og gulur voru meðal skærari lita en svartir, brúnir og gráir voru vinsælli, enda klassískari litir fyrir þessa gerð af leðri. Snákaskinnstöskurnar voru oftast í minni kantinum sem er smartast þar sem stór og fyrirferðarmikil taska með skinninu getur verið of mikið.
Skriðdýraskinn gefa framandi fíling og bera yfir sér lúxus. Hjá Prada sáu skór og töskur um að gera líflausan fatnaðinn áhugaverðari þar sem skórnir voru í exótískum stíl. Í sýningu Jil Sander var snákaskinnið aðeins fágaðra og einlitt í dökkum litum. Hinn litaglaði Matthew Williamson ákvað að poppa upp á snákaskinnið með skærbleikum skóm en clutch töskurnar sem hann sýndi voru í aðeins hefðbundnari snákaskinnslit, eða í yrjóttum hvítgráum og brúngráum.
