Steinþvegnar og rifnar gallabuxur
Efri röð: Balmain; neðri röð: Meadham Kirchhoff.
Þegar eitthvað birtist á sýningarpalli eins fremsta tískuhúss París, Balmain, sem er eitt eftirsóknasta merkið í dag, þá er víst að það verði vinsælt. Gallabuxur var eitt af því sem sýnt var í sumarlínu Balmain. Það eru mjög ákveðnar stefnur í gallabuxnatrendum eins og þau koma fram hjá tískuhönnuðum þótt oft séu sérhæfð gallabuxnamerki með aðra strauma. Bæði hjá Balmain og Meadham Kirchhoff, sem voru leiðandi í gallabuxunum fyrir sumarið, voru buxurnar ljósar og steinþvegnar. Buxur Balmain voru misjafnlega þvegnar allt frá því að vera með hvítum yrjum á ljósu gallefninu í það að vera nánast hvítar.
Bæði Kirchhoff og Balmain sýndu hnjánum athygli með innbyggðum hnjáhlífum, götum og bótum. Meadham Kirchhoff einbeittu sér mikið að rifnu efni en rifnar gallabuxur eru sífellt að verða vinsælli þar sem rifan er meira lárétt en ekki hringlótt eða mjög stór. Þó að nokkur buxnapör hjá Meadham Kirchhoff hafi nánast verið þaktar rifum þá eru nokkrar rifur eflaust betri í eftirhermu sem aðeins vægari útgáfa. Það er auðvelt að finna gamalt gallabuxnapar og taka upp skæri, dúkahníf, sprettuhníf og hver önnur tæki og tól sem til þarf og verða sér úti um eitt par af rifnum buxum a la Meadham Kirchhoff.
