Stórar og áberandi axlir

83901239212710storaraxlir.PNG
Efri röð: Gianfranco Ferré, 3.1 Phillip Lim, Lanvin. Neðri röð: Balmain, Dolce & Gabbana, Louis Vuitton, Rihanna í Balmain leðurjakka.

Ýmis áhrif frá níunda áratugnum birtust á sýningarpöllum sumarsins. Þar á meðal voru stórar axlir, en þær voru einnig áberandi á sumarsýningum síðasta árs en verða líklegast vinsælli í ár en í fyrra. Axlirnar sáust bæði rúnnaðar í yfirstærð í alvöru eitís anda, sem og skarpar í nútímalegu sniði. Axlir sem þessar veita valdamikið lúkk, þó að seinni útfærslan henti betur til að herma eftir. Það sem hafa þarf í huga þegar á að endurskapa útlit sem að flestir vonuðu að kæmi aldrei aftur, er að nútímavæða það og nota það á ferskari hátt en áður.

Þar sem verið er að ýkja efri part líkamans þarf að hafa í huga að klæðast aðsniðnu að neðan. Stórar axlir eru ekki hentugastar fyrir þær sem eru herðabreiðar eða barmmiklar. Það þarf að fara varlega þegar á að klæðast svo sterku trendi og halda sig í burtu frá risaöxlum með axlapúðum og tilheyrandi. Það er best að taka mið af þeim flíkum sem eru í gangi núna í stað þess að herma eftir eitís trendinu, en þannig næst sem nútímalegasta útlitið.