Stuttbuxnadragtir
Efri röð frá vinstri: Dries van Noten, Karen Walker. Neðri röð frá vinstri: Daugthers, Etro. Í miðjunni: Alexander Wang. Til hægri, efri: Stella McCartney, neðri: Louis Vuitton. Lengst til hægri: Kate Bosworth í Chloé.
Dragtir sem innihalda stuttbuxur í stað síðbuxna eru algjörlega fullkomnar í sumar. Hvort sem þær eru notaðar við fínni tilefni eða bara hversdags, þá verða þær flottar við aðsniðna jakka, en líka vesti á heitari dögum. Dragtirnar voru oftast í víðari kantinum og stuttbuxurnar sáust bæði hangandi á mjöðmunum, og líka háar í mittið en upprúllaður faldur var algengur. Síddin á buxunum var oft frekar stutt, en kemur líka vel út þegar hún nær aðeins neðar fyrir þá sem vilja sýna minni húð.
Stuttbuxnadragtir eru fersk útgáfa af hinni venjulegu dragt. Þær komu í ýmsum skemmtilegum litum, þó að klassískir litir hafi einnig verið sjáanlegir. Fyrir minna 'matchý' lúkk er sniðugt að klæðast sitthvorum litnum á jakkanum og stuttbuxunum eins og sást hjá Louis Vuitton. Jakkarnir voru einnig í sumarstíl eins og buxurnar, en bæði voru stuttar ermar áberandi sem og langar ermar sem búið var að bretta upp að olnbogum fyrir aðeins léttara yfirbragð. Stuttbuxnadragtir eru skemmtileg nýjung og góð leið til að klæðast fáguðum fötum að sumri til en um leið líta töff út.
