Sumarflíkin í ár
Salvatore Ferragamo; DKNY; Roksanda Ilincic; BCBG by Max Azria; Proenza Schouler; BCBG by Max Azria.
Buxnasamfestingar verða einstaklega flottir í sumar og nú þegar sumarið er formlega komið er ekki úr vegi að kíkja á flottustu samfestingana sem sáust á sýningarpöllunum. Þeir voru í ýmsum útfærslum, en oftast svolítið víðir og í þægilegum stíl. Efnin voru allt frá jerseyefnum til silkis og satíns, en einlit efni voru mest áberandi - annað hvort í dökkum litum, skærum eða drapplituðum. Blómamunstur eru þó einnig hressandi á samfestingum, hvort sem blómin eru krúttlega lítil eða stór og litrík.
Miðað við fjölbreytnina í samfestingum er bæði hægt að klæðast þeim hversdags sem og fínt. Hversdags koma langerma samfestingar í þægilegum efnum sterkir inn og þá er um að gera að bretta aðeins upp á ermarnar fyrir kæruleysislegra yfirbragð. Fyrir heitari daga eru stuttbuxnasamfestingar tilvaldir. Hvað fínni aðstæður varðar þá er aðalmálið að skipta flatbotna sandölum út fyrir háa hæla og þess vegna smart jakka ef samfestingurinn er ermalaus. Svo er alltaf flott að sýna smá kvenleika og setja belti í mittið og bæta við hálsmeni eða öðrum aukahlutum.
Fleiri ættu að gefa samfestingum tækifæri því það er svo sannarlega hægt að klæðast honum á flottan hátt. Varast skal að kaupa þá of víða, sérstaklega um lærin þar sem það er ekki mjög klæðilegt, en það eru til svo margar útgáfur að enginn ætti að örvænta í leit sinni að þeim hentugasta. Samfestingar eru ótrúlega auðveldir, því klæðnaðurinn er fullkomnaður með aðeins einni flík og hægt er að dressa hann upp og niður. Hafið augun opin í verslunum fyrir samfestingum en þeir eru í nokkuð góðu úrvali í tískuvörukeðjunum.
