Sumarlína Kron by KronKron

85441242825504tiskakronkron.PNG

Skólína Kron by KronKron fyrir sumarið er loksins komin til landsins. Kron by KronKron er hönnuð af fólkinu á bak við verslanirnar Kron og KronKron, þeim Hugrúnu Dögg Árnadóttur og Magna Þorsteinsyni. Þetta er önnur skólínan sem þau senda frá sér en sú fyrsta kom í vetur og vakti strax athygli fyrir skemmtilega hönnun. Skórnir eru alfarið íslensk hönnun en þeir eru framleiddir á gamla mátann í frægu skógerðarborginni Elda á Spáni.

Markmið þeirra Hugrúnar og Magna var að hanna línu sem er fyllilega samkeppnishæf við erlend gæðamerki og er það greinilegt að þeim hefur tekist það, enda aðeins notuð fyrsta flokks efni í skóna. „Hugmyndin af línunni er búin að vera í hausnum á okkur í mörg ár og ákváðum við nú að láta slag standa og láta drauminn verða að veruleika," segja Hugrún og Magni. Þau ákváðu að búa til skó þar sem allt mátti gera og engar fyrirmyndir notaðar, aðeins litir og sköpunargleði.

Í sumarlínunni má sjá bjartari liti en í vetrarlínunni, en þó ber hönnunin yfir sér svipað yfirbragð – hún er tímalaus og litaglöð en umfram allt kvenleg og falleg. „Sumarlínan er ögn mýkri en haustlínan, meiri rómantík er í henni í bland við kátínuna heldur en var í vetrarlínunni," svara Hugrún og Magni aðspurð um hvaða breytingar urðu í sumarlínunni. „Bæði kemur það fram í litavali og sníðagerð. Ljósara litaval í bland við sterka bjarta liti gera línuna kvenlegri og mildari."

Þeir litir sem koma meðal annars við sögu eru rauður, fölbleikur, sæblár og brúnn en þau efni sem eru ríkjandi eru leður, lakkað leður, rúskinn og burstað leður. Það sem gerir skóna svo einstaka er samspil lita, framúrskarandi sníðagerð og vel úthugsuð smáatriði. Til dæmis má sjá litla kögurdúska á rennilásum, slaufur, fínlegar reimar og pífur á skónum sem gerir þá líflegri. Annað sem vekur athygli eru hælarnir, en þeir eru í ýmsum litum.

Hugrún útskrifaðist sem fatahönnuður árið 2000 og Magni er menntaður hárgreiðslumeistari. Bakgrunnarnir eru ólíkir en blandast skemmtilega saman í hönnuninni. Það má með sanni segja að Kron by KronKron eru með flottustu skónum á landinu í dag og ættu allir þeir sem hafa áhuga á fallegum skóm og gæðahönnun að kíkja í verslanir Kron og KronKron á Laugaveginum og næla sér í par fyrir sumarið.