Sýnishorn af sumarleyfislínunum
Efri röð: Alexander Wang, Roksanda Ilincic, Brian Reyes, Yves Saint Laurent. Neðri röð: Celine, Balenciaga, Louis Vuitton, Emilio Pucci.
Júnímánuður var fullur af sýningum og kynningum á sumarleyfislínum hönnuða fyrir næsta vetur. Þessar línur eru betur þekktar sem resort eða cruise línur og vísa þannig til lúxusferðalaga ríka fólksins. Chanel reið á vaðið með veglegri cruise sýningu í Feneyjum, og hinir fylgdu í kjölfarið. Sífellt fleiri hönnuðir eru farnir að sýna sumarleyfislínur, en þær fá yfir höfuð minni athygli en aðallínurnar. Það voru bæði þeir eldri og reyndari sem sýndu heitustu trendin í sumarleyfisfatnaði vetursins, sem og þeir yngri og upprennandi en afslappaður glamúr var einkennandi fyrir margar línurnar.
Sökum þess að resort línur eru vanalega klæðilegri en önnur hönnun tískuhönnuðanna er hægt að fá meiri hugmyndir fyrir sinn eigin stíl. Ýmis trend sáust greinilega meðal sýninganna, glansefni í metallitum voru áberandi, rauði liturinn var vinsæll, sjóarastíll sást í formi röndótts og munstur af ýmsum gerðum voru heldur ekki sjaldséð. Ekki má svo gleyma svolítið strákalegum sniðum sem birtust á jökkum og buxum. Sumarleyfislínurnar innihéldu allavega nægan fjölbreytileika en þeir sem hafa áhuga á að skoða sýningarnar nánar geta kíkt á www.style.com/fashionshows/collections/2010RST.
Á næstunni verður að finna umfjöllun um hátískusýningarnar á Tískuheimi.is, en sýningarnar áttu sér stað í byrjun júlí.
