Þröngir 'múmíu' míníkjólar

20131244114350tiskabandage.PNG
Hervé Léger by Max Azria; Narciso Rodriguez; Thakoon; Alexander Wang; Julia Restoin-Roitfeld í Balmain; fyrirsæta í Balmain.

Innblásnir af múmíum, en þröngu ‚bandage‘ kjólarnir líta út líkt og þeir vefji manneskjuna inn með sárabindum að sið Egypta til forna. Þannig er kjólastílnum, sem á uppruna sinn frá Hervé Léger, lýst. Léger kjólarnir eru gerðir úr borðum úr teygjumiklum efnum en þaðan fá þeir heiti sitt, bandage, sem útleggst á íslensku sem sárabindi. Enda verða kjólar sem þessir að hálfgerðum vafningum en þeir eru iðulega níðþröngir. Á þann hátt líkjast efnistök kjólastílsins aðferð Egypta við að varðveita hina látnu.

Bandage kjólar þurfa að vera stuttir og hafa einhvers konar bönd á þvers og kruss um líkamann hvort sem það er einungis í kringum magann eða um allann kjólinn. Þeir geta þó einnig verið úr þröngu efni með rykkingum sem mynda einskonar bandage áhrif. Þröngu míníkjólarnir eru oft ermalausir eða með einum hlýra sem er gríðarlega vinsælt á kjólum núna. Crishophe Decarnin gerði til dæmis bandage kjól með einungis einni ermi fyrir Balmain merkið. Þetta kjólatrend er því miður ekki fyrir allra og þarf líkaminn að vera í lagi til að geta borið kjóla sem þessa með stolti.

Hervé Léger kjólastíllinn hefur komið upp á sjónarsviðið á ný hjá nokkrum hönnuðum fyrir sumarið. Teygjuborðunum var vafið þvers og kruss á fyrirsæturnar, en þröngu kjólarnir hjá Balmain voru ein besta útgáfan af kjólum sem þessum. Hervé Léger merkið er enn á lífi, hannað af Max Azria, en fleiri hönnuðir eru farnir að hanna kjóla í sama stíl. Það er því víst að þröngir míníkjólar í glamúr múmíustíl verða án efa eitt heitasta partýkjólatrendið í sumar.