Tískuvika: Mílanó Haust 2009
Frá vinstri: Burberry Prorsum, Etro, Gucci, Marni, Prada.
Tískusýningar Mílanóborgar eru ávallt elegant. Þar sýna ýmis stór tískuhús á borð við Versace, Gucci og Prada. Sýningarnar eru misjafnar að gerð en bera allflestar yfir sér ekta ítalska stemningu. Mikill lúxus var til staðar með loðfeldum, glitri og glamúr en þó voru einnig ákveðin kósýheit til með hlýjum flíkum. Mörg ítölsk tískuhús byggja á sögulegum grunni og hafa í gegnum tíðina verið með sitt einkennismerki sem eru þó eins misjöfn eins og tískuhúsin eru mörg. Gaman er að sjá hvernig hönnuðir merkjanna spiluðu úr þessum gömlu gildum ásamt því að halda í nútímatískustrauma.
Burberry Prorsum
Sýning Burberry var nokkuð einföld í litavali, en brúnir, gráir og kremaðir tónar voru einna mest áberandi. Flíkurnar voru ekki svo frábrugðnar því sem áður hefur verið sýnt hjá Burberry, en hönnuðurinn, Christopher Baily, telur tískuna á tímum sem þessum eiga að vera í einfaldara lagi og hagnýt, „hún ætti að hafa sjónarmið. Burberry eru yfirhafnir, og það er það sem ég hef unnið að hér, frá þægilegum rykfrökkum til lúxus pelsa." Línan innihélt mikið af yfirhöfnum en einnig dömuleg pils og kjóla sem náðu niður á miðja kálfa. Sniðin voru öll frekar létt í sér, ekkert var þröngt eða þröngvað heldur var heildarlúkkið rómantískt og fyrirhafnarlaust.
Emilio Pucci
Tískuhúsið Emilio Pucci, sem á uppruna að rekja til ársins 1947, fékk nýjan yfirhönnuð til liðs við sig til að hanna vetrarlínu næsta veturs. Það er hinn norski Peter Dundas og tók hann við af Matthew Williamson. Fyrsta línan hans blés nýju lífi í tískuhúsið, eilítið kynþokkrafyllra og ferskara lífi með þröngum míníkjólum og niðurmjóum buxum. Minna var um klassísku Pucci munstrin og var línan heldur dekkri en fyrri vetrarlínur. Nokkuð mikið var um stóra loðfeldi og einnig sást aðeins af leðri og glansefnum. Skótauið var tvenns konar, lærahá rússkinnsstígvél voru pöruð saman við míníkjólana; og pinnahælar með ólum uppá ökkla sem voru töff við þröngar buxurnar.
Etro
Línan sem Veronica Etro sendi frá sér að þessu sinni var nokkuð brún með blöndu af bláu og svörtu. Líkt og í sumarlínunni fyrir næsta sumar leitaði Etro í innblástur frá framandi löndum, að eigin sögn frá Býsans og Tyrkjaveldi en sögulegur bakgrunnur Tyrklands sést vel í fatnaðinum, þá aðallega munstrunum. Hún setti innblásturinn frá fyrrnefndum stöðum í lúxusbúning þar sem hún notaði gull og brons metaltóna með. Í skóm og hálsmenum notaði hún fjaðraskraut í indíánastíl sem voru töff smáatriði. Ökklasíðar buxur voru áberandi í sýningunni þar sem sniðin voru víð og voru þær, jafn og pilsin, mittishá. Þegar upp er staðið voru það þó munstrin og Tyrkjainnblásturinn sem skein sterkast í gegn og voru til þess að gera línuna líflega og áhugaverða.
Gucci
Það voru töff týpur sem gengu sýningarpalla Gucci í lok febrúar í Mílanó. Línan var mikið til svört með einstaka doppum og röndum á dökkum bláum og grænum. Fyrirsætur líktust glysrokkpíum þar sem mikið var um glans- og glitrandi efni, en því var svo blandað við leður- og lakkleðurleggings. Hönnuðurinn, Frida Giannini, sýndi mikið af túnik toppum við leggings eða lærhá leðurstígvel en hún jafnaði það út með drögtum sem samanstóðu af níðþröngum og niðurmjóum buxum við kassalaga stutta jakka. Það var mjög svalt yfirbragð yfir sýningunni, enda voru fyrirsætur með kolsvört sólgleraugu sem gáfu þeim aukinn töffleika. Giannini gekk vel að skreyta glamúrinn sem einkennir Gucci með strákalegu ívafi og örlitlu rokki – allt samt á fágaðan og viðkunnalegan hátt.
Marni
Marni sýningar eru alltaf samkvæmar sjálfum sér. Það er aldrei neitt sem kemur virkilega á óvart en alltaf eru flíkurnar áhugaverðar. Ýmis klassísk einkennismerki Marni voru á sínum stað, þar má nefna snið flíkanna sem eru bein í sér og alls ekki of aðþröng. Eins má nefna munstrin og litina og sömuleiðis belti sem eru ekki sjaldséð á sýningarpalli Marni, en þar sem fatnaðurinn er heldur sniðlaus geta beltin gert gæfumunin. Munstrin gætu ef til vill verið talin svolítið gamaldags, samanber skokk sem bar útsaumað blóm. Það sem setti hins vegar punktinn yfir i-ið var gyllt skartið í formi misstórra blóma, og svo loðfeldir sem voru notaðir á skemmtilegan hátt. Eins og í þónokkrum öðrum haustsýningum voru sýndar ‘górilluhendur‘ en það eru svartar lúffur sem minna helst á framhandleggi górilla. Spurning hvort það sé það sem koma skal í vettlingatískunni.
Missoni
Missoni er, líkt og mörg önnur ítölsk tískhús, gamalt fjölskyldufyrirtæki. Hönnuður Missoni er Angela Missoni og tók hún við af foreldrum sínum en tvö systkini hennar hafa einnig verið viðriðin fyrirtækið. Missoni tískuhúsið er þekkt fyrir lífleg munstur á prjónaflíkum. Angela hélt fast í prjónaflíkurnar fyrir vetrarlínuna sem var í dempuðum brúnum, gráum, bláum og appelsínugulum tónum. Angela notaði síða og fyrirferðamikla trefla mikið og bar eiginlega hver einasta fyrirsæta einn ef ekki tvo trefla um hálsinn. Þykkum prjónaflíkum var blandað saman við örþunn efni – þunnar bómullarleggings og siffonkjóla. Yfirhafnirnar voru miklar í sér, en þar má nefna víðar kápur, loðfeldi og grjófprónaða jakka.
Prada
Prada sýningin var ólík öllum öðrum sýningum í Mílanó og er ein ástæða sú að Miuccia Prada fer alltaf sínar eigin leiðir og hugsar tískuna ekki alltaf út frá því sem talið er smekklegt. Þannig má segja að vetrarlínan hafi ekki verið sú smekklegasta við fyrstu sín en þegar betur er að gáð, þá bar hún ýmisleg flott einkenni. Kvenlegt var stór hluti af línunni, en þar spila sniðin stórt hlutverk með áherslu á mittið, bæði í kjólum og pilsdrögtum. Af sniðunum að dæmi virtist fimmti áratugurinn vera Prada hugleikinn. Áhugavert var að sjá hvernig stígvél voru notuð á nýjan hátt, bæði sáust gúmmístígvél sem og leðurstígvél sem náðu nánast upp í nára. Leður var annars notað í hnésíðar kápur þótt dragtirnar hafi aðallega verið úr tweed ullarefni. Skreytingar á fatnaði komu í formi velúrblómamunsturs á drögtunum, og metalgadda og skrautblóm á leðurstrimlakjólum.
Roberto Cavalli
Roberto Cavalli var í góðum gír þegar hann sýndi vetrarlínu sína fyrir næsta vetur. Hönnuðurinn sem hefur verið í svolitlum rómantískum fíling undanfarnar árstíðir, sagði að hin nýja Cavalli kona sé „sterk, ágeng, kynþokkafull og ung, og hún mun hjálpa mér í gegnum þessa krísu." Hann veðjaði því á harðara útlit fyrir veturinn og spilar svartur þar lykilhlutverk. Áferðirnar eru ríkulegar, loðfeldir og leður eru þar á meðal en mikið af flíkunum voru skreyttar með göddum og álíka metalsmáhlutum. Hann sýndi flotta jakka og voru þeir oft úr feldi, en Cavalli notaði loðfeld yfir höfuð á svipaðan hátt og gert var á sýningu Marni. Svartur feldur var til dæmis notaður á moonboots kuldaskó, um handleggi og um hálsinn. Þótt svartur hafi verið allsráðandi var einnig aðeins um ljósari liti en það var þá annað hvort svart frá toppi til táar eða ljóst lúkk sem fékk að njóta sín.
