Tískuvika: New York Haust 2009
New York borg iðaði af lífi, jafnvel enn meira en vanalega, þegar tískuvikan átti sér þar stað um miðjan síðasta mánuð. Tískan sem sýnd er í New York býr alltaf yfir meiri praktík en í hinum tískuborgunum og því gaman að líta á línurnar sem geta hentað sem hugmyndir fyrir næsta vetur hér á landi. Tískuheimur.is mun fjalla um þær sýningar sem stóðu hvað hæst upp úr í New York.
Alexander Wang
Svartur var allsráðandi í vetrarlínu Alexanders Wang og birtist hann með mismunandi áferðum. Línan var þroskaðri en fyrri línur hönnuðarins og samanstóð af skörpum sniðum og lúxus. Þótt fágun hefði verið einkennandi var samt hægt að sjá vott af rokki og róli líkt og áður en þó í fullorðinsbúning. Kynþokki er stór hluti af hönnun Wang og komu þær flíkur í enda sýningarinnar þegar fyrirsætur stigu fram í djörfum kjólum. Sýningin sýnir sem fyrr hversu Wang er góður að gera sterkan, kynþokkafullan og nútímalegan klæðnað.
Marc Jacobs
Marc Jacobs þorir að fara alla leið og því eru sýningar hans aldrei minimalískar. Þessi var engin undantekning en Jacobs tók níunda áratuginn bókstaflega. Það voru neon litir, stórar axlir, buxur háar í mittið, stuttir útvíðir partýkjólar, flíkur úr glansefni og stórt og afgerandi skart. Lúkkið var unglegt og svolítið villt en inn á milli var hægt að sjá aðeins þroskaðri stíl, allt þó innblásið af New York borg í eitís tímabilinu á einhvern hátt.
Narciso Rodriguez
Narciso Rodriguez blandaði eitís áhrifum saman við minimalískar klæðskornar flíkur. Hann sýndi níðþrönga kjóla í skærum litum og einnig nokkrar flíkur með nútímahermannamunstri í svarthvítri útgáfu. Hann vann mikið með snið sem voru aðsniðin kvenlíkamanum. Flíkurnar náðu oft upp í háls, stundum með útskornu gati á bringunni sem sýndi svolítið leyndan kynþokka. Línan var flott með vænni blöndu af klassík og litagleði.
3.1 Phillip Lim
Phillip Lim veðjaði á sjöunda áratuginn við gerð línu sinnar, 3.1 Phillip Lim, fyrir veturinn. Þar tók hann fyrir ýmsar stefnur áratugarins. Meðal þess voru dragtir með stuttum buxum sem voru útvíðar að neðan sem og rufflaðar blússur með slaufum í anda áratugarins. Annað sem sjá mátti á sýningunni voru loðfeldir, pallíettur og lífleg munstur allt í hressandi sixtís stíl.
Proenza Schouler
Proenza Schouler tvíeykið héldu sig við jarðliti í sýningu sinni fyrir næstkomandi vetur. Þeir notuðu tweed og ullarefni mikið en blönduðu þeim með léttari efnum og mynduðu munstur í flíkurnar með báðum efnunum. Línan var ótrúlega vetrarleg með þykkum efnum og stórum kápum og því góður innblástur fyrir vetrartíðina. Þeir sýndu þó ekki eingöngu hlýjar vetrarflíkur því partýkjólarnir sem komu fram í lok sýningarinnar voru í fallega dimmum blektónum með glansáferð og eiga án efa eftir að klæða smart tískupíur á komandi hausti.
Preen
Ferska tískumerkið Preen, hannað af Justin Thornton og Thea Bregazzi, olli ekki vonbrigðum þegar vetrarlínan var sýnd. Línan var mikið til svört og hvít, þar sem litunum var blandað saman í munstri, og svo var grár einnig áberandi. Skærir litir, en þó í dempuðu formi, birtust á nokkrum kjólum sem gaf sýningunni óneitanlega smá líf. Þar með er ekki sagt að sýningin hafi verið líflaus, því þrátt fyrir klassíska liti voru flíkurnar einstakar eins og við mátti búast. Þröngi míníkjóllinn sem Preen er orðið þekkt fyrir, var á sínum stað í ýmsum útgáfum, ásamt kápum sem yrðu flottar í kuldanum.
Matthew Williamson
Dagurinn sem sýning Matthew Williamson mun vera lita- og munsturslaus mun seint renna upp. Williamson gerði einstaklega flotta haust- og vetrarlínu sem samanstóð af munstruðum kjólum og kápum. Litirnir í munstrunum voru mestmegnis í appelsínugulu, bláu og gráu. Nokkuð var um loðfeldi í kápum og um hálsinn, en blár pels stóð þó sérstaklega uppúr. Williamson er snillingur í litum og munstrin hans eru alltaf hressandi þegar sýningar hans eru annars vegar.
Rodarte
Sýning Mulleavy systranna, sem mynda Rodarte, skiptist nánast í tvennt eftir litapallettum. Dekkri litir tóku við af ljósari litum, en yfirbragðið var samt sem áður það sama – framtíðaráhrif með náttúruinnblæstri í litum og efnum. Hæst bar á leðri, grófu garni og siffoni en blanda af efnum virtist mikilvægast hlekkurinn í flíkunum. Snilldarsýning í alla staði þar sem systurnar héldu Rodarte heiðrinum á lofti en könnuðu samt á ný mið með hönnun sína.
