Tískuvika: París Haust 2009

68631237476359showsparis.PNG
Frá vinstri: Balenciaga, Chloé, Givenchy, Nina Ricci, Stella McCartney.

Síðasta tískuvikan var haldin í París – tískuborginni París. Þar er úr nógu af taka af flottum sýningum. Þar sýna ekki einungis franskir hönnuðir og tískuhús og má því til stuðnings nefna hin bresku Alexander McQueen og Stellu McCartney en þau hafa til fjölda ára sýnt í París í stað heimalands síns. Auðvitað eru einnig hin sönnu frönsku tískuhús eins og Chanel, Givenchy og Yves Saint Laurent alltaf á sínum stað.

Balenciaga
Nicolas Ghesquière, hönnuður Balenciaga, létti talsvert upp í sniðum Balenciaga fyrir næstu vetrartíð. Í stað skarpra sniða og ýktra forma ákvað hann að birta flíkur sem lögðust lauslega að líkamanum. Það átti mest við pilsin, sem voru fallega rykkt að framan, og munstraðra langerma kjóla. Þó sáust líka klæðskerasniðnar flíkur og stórar axlir en Ghesquière mýkti formin og notaði léttari efni miðað við fyrri línur. Efnin voru ríkuleg þar sem satín, silki og flauel komu mikið við sögu. Hönnun Balenciaga virðist vera að víkja í burtu frá vísindalegri tilhneigingu í átt að kvenlegra ívafi sem ætti að gleðja margar konur.

Balmain
Það er búin að vera eilíf diskóveisla hjá Christophe Decarnin undanfarnar þrjár línur sem hann hefur hannað fyrir Balmain. Grunnlitirnir svartur, hvítur og grár voru einu litirnir í vetrarlínu næsta árs, þó með rafmagnsbláum skotið inn í á nokkrum flíkum. Línan hefði varla þurft fleiri liti þar sem glitrið af pallíettum og glanssteinum var nægilega líflegt og bjart. Diskótímabilið kom inn í formi fyrrnefndra pallíetta ásamt þröngum míníkjólum, stórum öxlum og annars konar glamúr, en Decarnin hefur haldið fast í það lúkk sem gerði Balmain að ‘möst have‘ merkinu á síðasta ári.

Chloé
Haustlína Chloé fyrir næsta haust og vetur var öll í svolitlum kósýheitum þar sem fatnaðurinn var í yfirstærð, þar eru kápur líkt og ábreiður, buxur eru bananalagaðar niður fótlegginn með inndregnu mitti og víkkun um læri og kálfa en svo þrengri um ökklann. Stuttbuxur eru sömuleiðs víðar en skyrtur og bolir eru í ‘réttri‘ stærð og voru þær langoftast girtar ofan í buxur og stuttbuxur. Mjó belti voru notuð í mittið til að vekja enn meiri athygli að því. Litirnir einskorðuðust við ýmsa brúna og gráa tóna í þægilegri klæðnaði líkt og brúndrappaðan og blágráan. Kvöldklæðnaðurinn var svo að mestu svartur, hvítur og beislitaður og var hann í sömu víðu sniðunum.

Givenchy
Sýning Givenchy var kvenleg og elegant með flíkum sem fara kvenlíkamanum vel, enda sagði hönnuðurinn Riccardo Tisci að hann „vildi sýna mikið af ólíkum formum fyrir allar gerðir kvenna". Litirnir sem Tisci valdi fyrir flíkurnar voru fagrir – svartur, blekblár, beislitaður og hvítur. Einfaldir en samt svo við hæfi miðað við flíkurnar. Hvort sem það voru dragtir, kápur, kjólar eða buxur þá var allt fullkomlega sniðið. Það sem gerði fatnaðinn áhugaverðann var áferðin á efnum og skrauti sem Tisci notaði. Þar koma við sögu gegnsæ efni, strútsfjaðrir, geitahár, gróft netaefni, gaddar og mjóir kaðlar. Þarna var hægt að sjá fágun eins og hún gerist best, með fersku yfirbragði og gerða á nútímalegan hátt.

Louis Vuitton
Líkt og á sinni eigin sýningu, sýndi Marc Jacobs mikla eitís strauma á sýningu Louis Vuitton í París. Áratugurinn kom þó í öðruvísi búningi, því á meðan Marc Jacobs sýningin í New York var innblásinn af tímabilinu í Stóra eplinu, bar Louis Vuitton sýningin yfir sér eitís áhrif með frönsku ívafi. Sterkir litir voru til staðar í gulu, rauðu, grænu og bláu, blandað við hlutlausan svartan og beislitaðan. Mikið var um blúndur, pífur og ýktar rykkingar í kringum mjaðmir og axlir. Línan tók mið af ýmsum trendum níunda áratugarins með daðurslegu og upplífgandi móti.

Nina Ricci
Það er synd að yfirhönnuður Nina Ricci, Olivier Theyskens, skuli vera á brottfaraleið úr fyrirtækinu því vetrarlína Nina Ricci sannaði enn og aftur hve hæfileikaríkur hann er. Hann hannar ákafan og sterkan fatnað og hefur fengið sérstakt lof fyrir flotta síðkjóla, sem átti einnig við nú. Fyrir næsta vetur einbeitti hann sér að að langri lögun hvað buxur varðar, en þær voru þunnar og síðar úr fljótandi efnum. Aðspurður um hvernig hann hugsaði línuna, sagðist hann hafa hugsað um næturblæ – tunglskinið og eitthvað yfirnáttúrulegt. Sýningin var gerð á svo óljósan hátt að þótt nóg hafi verið af glamúr í glitrandi glansefni og leðri var hann notaður á svo óáberandi hátt að maður fékk ekki þann fíling fyrir línunni.

Stella McCartney
Gagnrýnendur sögðu haustlínu Stellu McCartney fyrir næsta haust hafa verið hennar besta í nokkurn tíma. Línan innihélt þónokkuð af buxum og jökkum í klassískum sniðum þar sem jakkinn var oft í yfirstærð svo hann virkaði eins og kjóll, einnig sáust egglaga kápur og loðin, þykk efni á peysum og jökkum sem er hennar svar gegn loðfeldum. Hvað kjóla varðar þá voru þeir í undirfatastíl, s.s. með blúndu eða úr silki/satín. Stella McCartney hefur aldrei verið brautryðjandi innan tískuheimsins, en hún hannar þægilegan og auðveldan fatnað með nóg af áhugaverðum sniðum, efnum eða smáatriðum til að heilla konur.

Yves Saint Laurent
Fyrstu fyrirsætur sem gengu sýningarpallinn hjá YSL voru allar klæddar í leður – leðurkápu, leðurjakka, leðurbuxur og leðursamfesting. Á eftir leðurflíkunum komu svo flíkur í klassískum sniðum með tvisti, ekkert nýtt en samt allt í YSL stíl. Stefano Pilati sagðist hafa þurft að endurspegla tímana núna og að þetta væri hans hugarástand. Hann er góður að gera nútímaborgarklæðnað fyrir sterkar konu þar sem koma við sögu kríthvítar skyrtur, teinóttar buxur og pils og beinsniðnir einfaldir kjólar. Línan er ekki sú besta á tískuvikunni í París en YSL stuðullinn var til staðar og er það allt sem hægt er að biðja um á tímum sem þessum.