Tískuvikan í Köben: Stine Goya
Yfir þrjátíu hönnuðir sýndu á nýafstaðinni Kaupmannahafnartískuviku. Þar var hægt að líta á sumarlínur danskra hönnuða á borð við Malene Birger, Henrik Vibskov og Charlotte Eskildsen. Tískuheimur hefur augun á ungum hönnuði á uppleið, Stine Goya. Goya útskrifaðist sem fatahönnuður úr Central Saint Martins árið 2005 með sérstöðu í munstrum. Fyrstu línuna sína kallaði hún Confetti og sýndi hana á tískuvikunni í Kaupmannahöfn tveimur árum eftir útskrift, í febrúar árið 2007. Goya fékk mikla athygli í heimalandinu og hefur síðan þá ekki brugðist því að heilla aðdáendur sína með ungri og flottri hönnun.
Fyrir næsta sumar sýndi Stine Goya ekta sumarfatnað í ferskum pastel litum. Ljósappelsínugulur, fölbleikur og lime grænn komu þar mest við sögu en svartur frá toppi til táar sást inn á milli. Goya ákvað að hunsa hinn venjulega sýningarpall og kaus þess í stað að sýna línuna við sundlaugarbakka. Það var þó algjörlega við hæfi þar sem í sumarlínunni var að finna flott sundföt og fatnað sem myndi henta einstaklega vel á ströndinni og í sumarfríinu. Þægindin voru höfð í fyrirrúmi með buxnasamfestingum, harem buxum og víðum bolum en settlegri flíkur á borð við aðsniðna jakka og dömulega kjóla komu þar á móti.
Punkturinn yfir i-ið voru svo litríkar glimmervarir og perluskreyttir hanskar sem fyrirsætur báru á annarri hendinni – óður til poppkóngsins kannski?
Skoðaðu fleiri hönnuði á www.copenhagenfashionweek.com.
