Töff sumarstílar frá E-Label
1. String Dress 14.600 2. Frill Front Dress 15.900 3. Cape Dress 13.900 4. Drape Neck Dress 13.900 5. Twisted Hoodie 17.800 6. Poncho Top 13.900 7. Disco Dress 10.500 8. Kimono Wrap 19.800.
Í vikunni kom ný sending frá E-Label og eru það sumarstílar merkisins. Línan heldur í yfirskrift E-Label um hina sterku og sjálfstæðu íslensku konu, en allar flíkurnar eru í svörtu. Meðal nýjunga eru ýmsir kjólar, eins og Cape kjóllinn sem er með opinni ermi öðru megin, Disco kjóllinn sem er skemmtilegu hálsmáli, en Frill Front kjóllinn er sömuleiðis flottur í sniðinu. Poncho toppurinn er ekki síður smart en hann er síðari að aftan en framan. Allt eru þetta flíkur sem hægt er að nota frá degi til kvölds, en þær eru klassískar en samt er hægt að sjá í þeim ýmsar tískustefnur líðandi stundar.
Eins og allir þeir sem fylgjast með íslenskri hönnun vita, var E-Label stofnað fyrir tveimur árum, eða árið 2007. Þægileg efni eru hafð í fyrirrúmi en þrátt fyrir það eru margar flíkurnar sparilegar. Eins og áður sagði er nokkuð um kjóla en einnig komu nokkrar peysur sem gegna hlutverki yfirhafnar, eins og Kimono Wrap, sem er einskonar nútímaleg útgáfa af japanska kímonóinu, og Large Knot hettupeysuna, sem er hægt að nota sem jakka á köldum sumarkvöldum. Úrvalið vantar allavega ekki, en áhugasamir ættu að skella sér í verslun E-Label að Laugavegi 33 eða á www.e-label.is.
