Væntanlegir fatahönnuðir Bretlands

45151244677979tiskacsm.PNG

Nýlega var haldin útskriftarsýning fatahönnunarnema úr hinum vinsæla fatahönnunarskóla Central Saint Martins í Lundúnum. St. Martins hefur gefið af sér eina bestu hönnuði Bretlands og er talinn sá langbesti þegar kemur að tískuhönnun í landinu. Eins og við var að búast var margt um efnilega hönnuði á útskriftarsýningu þessa árs en þar voru sýndar frumlegar og flottar flíkur. Það voru samtals 40 manns sem sýndu verk sín en innan þessa stóra hóps voru auðvitað nokkrir sem stóðu sérstaklega upp úr.

Þrír heppnir nemendur urðu í þriðju efstu sætum eftirsóttra L‘Oreal fagverðlauna en það voru þau Luke Brooks, Dean Quinn og Marie Hill sem hreppti að lokum verðlaunin. Lína Hill einkenndist af flottri samsetningu fínlegs prjónaefnis og organza efnis sem mynduðu einstök munstur á skærlita þröngum kjólum. Hönnun Quinn var framtíðarleg með hvítum, gráum og svörtum efnum en sníðagerðin var skörp. Luke Brooks einbeitti sér hins vegar að grófprjónuðum flíkum með mikilli vídd.

Annar hönnuður sem þótti skara fram úr fyrir áhugaverða línu var Alexander Ruth. Fatalína Ruth var óvenju klæðileg miðað við margar aðrar á sýningunni en hann hélt hlutunum áhugaverðum með léttum og þunnum efnum sem hann blandaði saman á áhugaverðan hátt. Útfærsla flíkanna var ekki ofurflókin eins og stundum vill verða á útskriftarsýningum þegar frumleikinn ræður ríkjum. Litirnir voru fallegir; hvítur, svartur og ljósbleikur voru allsráðandi á flíkunum sem umluku líkamann í bogalegu formi.

Það sem einkenndi útskriftarsýninguna í heild var þó að nemendurnir höfðu greinilega unnið mikið með efni og þá sérstaklega tæknilega hlið þeirra þannig að útkoman varð fersk og öðruvísi. Þetta er eingöngu forsmekkur af því sem sýnt var á sýningunni en hún innihélt ýmis konar hönnuði. Sumir gengu út frá skærum litum í línunni sinni, aðrir völdu að vanda til sníðagerðar á meðan enn aðrir fóru þá leið að leika sér með munstur eða efni.

Það verður gaman að fylgjast með þessum hönnuðum í framtíðinni enda flestir fremstu bresku hönnuðir dagsins í dag sem stigu sín fyrstu spor í Central Saint Martins. Christopher Kane er til dæmis þar á meðal en hann hefur sannað sig rækilega í tískuheiminum á stuttum tíma. Aðrir Central Saint Martins skólagengnir hönnuðir eru þau Luella Bartley, Giles Deacon, Stella McCartney og Alexander McQueen.