Um okkur

45111237052578banner01.PNG

Tískuheimur.is er nýr og spennandi tískuvefur á Íslandi sem settur var í loftið 11.mars síðastliðinn. Vefurinn er ætlaður þeim stóra hópi fólks sem hefur áhuga á tísku og færir lesendum allt það helsta sem gerist í hinum stóra tískuheimi. Á Tískuheimi.is er að finna nýjustu fréttirnar í bransanum, tískustrauma líðandi stundar, ýmislegt um förðun og hár ásamt stíl stjarnanna og tískufólksins.

Hugmyndin að Tískuheimi.is er að hluta til sótt til ýmissa erlendra tískuvefja, en þó með breyttum áherslum til að aðlagast íslenskum aðstæðum. Lengi vel hefur vantað miðil hér á landi sem fjallar eingöngu um tísku og einbeitir sér alfarið að tískutengdu efni. Tískuþyrstir Íslendingar geta því loksins komið á einn stað og fengið allar þær upplýsingar sem þeir þurfa.

Markmið Tískuheims.is er að birta ferska mynd af tísku með vandaðri umfjöllun og góðu úrvali myndefnis. Fyrst um sinn verður tíska erlendis mest á sjónarsviði, en stefnan er að auka innlent efni eftir því sem á líður og ætlum við því að fylgjast vel með íslenska tískuheiminum. Við viljum því endilega að lesendur sendi okkur ábendingar ef þú eða eitthver sem þú þekkir eru að gera góða hluti í tískuhönnun.

Tískuheimur.is er kærkominn miðill fyrir áhugafólk um tísku og vonum við svo sannarlega að þér líki vefurinn!

Netfang  tiskuheimur@tiskuheimur.is
Auglýsingar  auglysingar@tiskuheimur.is